Lýsing

Michelsen AE
AE er tæknilega fullkomið úr sem hannað var fyrir ferðalanga og með erfiðar aðstæður í huga.
Sérstök útgáfa af úrinu var gerð fyrir Vilborgu Örnu Gissurardóttur sem valdi AE sem tímamæli fyrir göngu sína á Suðurpólinn. Hún valdi aðeins búnað sem hún gæti treyst á þessari löngu og krefjandi göngu. „Úrið reyndist mjög vel. Ég hengdi það jafnan framan á mig á morgnana með áttavitanum svo það var berskjaldað í öllum veðrum og vindum“ -Vilborg Arna.

Upplýsingar
Helstu upplýsingar:
- Tveggja tíma úr, þriðji tíminn notaður til að reikna tímamismun.
- 100 metra vatnsþéttur og sterkur hágæða úrkassi úr ryðfríu 316L stáli.
- Rispufrítt safírgler, með hörku upp á 9 mohs og speglunarvörn (e. anti reflective coating).
- Sjálftrekkt úrverk frá vönduðum svissneskum framleiðanda (ETA 2893-2).
- Fáanlegt í einum skífulit: Svörtum. Hvítt og blátt er uppselt.
- Úrval af ólum: þrælsterkar nylon-, gúmmí- og leðurólar í ýmsum litum. Sjá fellilista hér að neðan.
- 2ja ára ábyrgð gegn framleiðslugöllum.
Ítarlegar upplýsingar um úr:
⌀ 42mm úrkassi.
Bil á milli kjálka 20 mm.
10ATM vatnsvörn.
Hágæða 316L ryðfrítt stál.
Safírgler með speglunarvörn.
Skrúfað bak með safírgleri.
Þrívíð klukkustundamerki.
Hvítt Super-LumiNova á vísum og klukkustundamerkjum.
Auðlæsileg skífa.
Ítarlegar upplýsingar um verk:
Sjálftrekkt skreytt ETA 2893-2
Tveggja tíma
Dagsetning
42 tíma upptrekking