Seiko King Seiko ‘Garyu-Bai’

kr.290.000

Uppselt

Áberandi skarpar línur einkenna King Seiko línuna, sem upphaflega var hönnuð 1965 og endurvakin 2020.

Uppselt

Hafnartorg ❌

Kringlan ❌

Viltu fá tilkynningu þegar varan kemur aftur á lager?

SKU: SPB287J1 Category: Brand:

Lýsing

King Seiko var stofnað á 7. áratug síðustu aldar á sama tíma og Grand Seiko – og til höfuðs Grand Seiko. Merkin tvö áttu að keppa innbyrðis um gæði og koma Seiko sem heild upp á hærra plan. Grand Seiko vann þann slag, en nú hefur King Seiko verið endurvakið með upprunalegri hönnun.

Plómurauða „Garyu-bai“ skífan í úrinu heiðrar fæðingarstað King Seiko, Kameido-hverfi í Tókýó, sem frægt er fyrir plómualdingarða sína. „Garyu-bai“ var var vinsælasta plómutréð af þeim öllum, þar sem það líktist liggjandi dreka. Nákvæmlega þetta tré varð innblásturinn að einu síðasta meistaraverki listamannsins Utagawa Hiroshige: „Plum Garden at Kameido“, sem síðar var endurskapað af Van Gogh í hinu heimsfræga verki „Japonaiserie: Flowering Plum Tree“.

Þetta úr er einungis fáanlegt í sérvöldum verslunum á heimsvísu.

Úrkassi: 37mm – stál
Úrverk: Sjálftrekkt – 6R31 með 70 tíma power reserve
Vatnsvörn: 100M
Skífa: Rauð – vísar
Gler: Rispufrítt safírgler – speglunarvörn
Keðja: Stál
Ábyrgð: Tveggja ára

Additional information

Skífulitur

Rauð

Málmur

Stál

Stærð

37mm

Eiginleikar

Sparilegt, Safírgler, Vatnshelt 100M

Úrverk

Sjálftrekkt

Steinar
Litur steina
Demantastærð
Box og pappír
Árgerð
Vöruflokkar
Kyn

Karlar, Konur

Ól / Keðja

Keðja