

Saga Oyster
Uppruni þess er í sýn Hans Wilsdorf. Stofnandi Rolex leitaðist við að gera armbandsúrið að óaðskiljanlegum hluta þeirra tækninýjunga sem gjörbreyttu samfélaginu í upphafi 20. aldarinnar. Hundrað árum eftir að hafa umbylt heimi úrsmíðanna heldur Oyster áfram að stækka og hjálpa öllum sem bera það að ná persónulegum markmiðum sínum.
Nákvæm tímamæling, vatnsheldni og sjálftrekking: þessar þrjár áskoranir og mikilvægu afrek í úrsmíði staðfestu árangur hugsjónamanns og ákváðu örlög byltingarkennds úrs.


Áskorunin í kringum nákvæmni
Árið 1910 fékk úr frá Rolex vottorð um nákvæmni í tímamælingu frá Official Watch Rating Center í Bienne í Sviss. Með því var sannað að þetta armbandsúr væri jafn nákvæmt og vasaúr, sem var viðmiðið á þessum tíma. Nokkrum árum síðar, árið 1914, varð heimur úrsmíðanna agndofa á ný þegar annað armbandsúr frá Rolex fékk vottunina „Class A“ frá Kew Observatory í Bretlandi. Þessi heiður hafði hingað til eingöngu hlotnast stórum skipsúrum.
Með þessum afrekum tók Rolex stór skref í átt að áreiðanleika armbandsúra, en áður hafði aðallega verið litið á þau sem skartgripa og afar ónákvæm verkfæri. Eftir að hafa sigrast á áskoruninni um nákvæmni sneri Rolex sér að því að hanna framúrskarandi brynju í kringum gangverkin sín.
Frá Oyster til
Oyster Perpetual
Uppfinning Oyster árið 1926 var mikið tímamótaskref í úrsmíði. Úrkassinn, sem myndi ljá armbandsúri nafn sitt, var algjörlega vatnsþéttur og rykþéttur, þökk sé kerfi sem skrúfaði niður hringinn, úrbakið og trekkjarann upp að miðkassanum.
Þessi nýjung á sviði úrsmiði þurfti að heyja mikla þolraun árið 1927 þegar hin enska Mercedes Gleitze synti yfir Ermarsund á milli Frakklands og Englands og var yfir 10 klukkustundir í ísköldum sjónum. Úrið sem hún hafði á sér - sem var Oyster úr gulli - hélst fullkomlega starfhæft.
Perpetual-sjálfvindulóðið kom árið 1931 sem alveg nýtt sjálftrekkjandi kerfi og bætti afköst Rolex úranna enn meira. Nú var Oyster orðið „Perpetual“: nákvæmt, vatnsþétt og núna sjálftrekkjandi.

Lifandi rannsóknarstofa
„Frammistaða undir álagi“ var stefna Hans Wilsdorf, sem ákvað eftir afrek Mercedes Gleitze að gefa Oyster úr til ýmissa könnuða, vísindamanna, íþróttafólks, flugmanna, sjókappa, fjallaklifrara og kafara. Þessir menn og konur fengu að prófa áreiðanleika Rolex allt frá hæstu tindum til hafsbotns, og breyttu þannig plánetunni í lifandi rannsóknarstofu. Ábendingar þeirra gerðu verkfræðingum merkisins að fullkomna Oyster úrin og gera stöðugar endurbætur á þeim.


Safn nýsköpunar
Aukið þol gegn þrýstingi og sterkum segulsviðum, hringir með kvörðun sem hægt er að snúa, annað tímabelti... Allt frá miðjum 5. áratug síðustu aldar fjölgaði módelunum og þau urðu sífellt sérhæfðari til að uppfylla margvíslegar kröfur. Þannig myndaðist heil fjölskylda úra út frá fyrsta Oyster úrinu. Hvert þeirra hefur orðið að fyrirmynd í sínum flokki og mörg þeirra hafa verið viðurkennd sem táknræn í úrahönnun.
Skuldbinding við framtíðina
Saga Oyster er einnig mörkuð af fjölmörgum afrekum frægra Rolex notenda.
Vörumerkið styður íþróttafólk sem hefur hjálpað við að móta sögu íþróttarinnar með kunnáttu sinni, þoli, tækni og getu til að hrífa yngri kynslóðirnar. Rolex heldur áfram að uppfylla þessa skuldbindingu með því að starfa með virtustu stofnununum á sviði hestaíþrótta, golfs, mótoríþrótta, tennis og siglinga.
Þessi leit að yfirburðum er einnig hvatinn fyrir einstaklinga sem eru studdir af Perpetual Arts Initiative, þar sem hæfileikar þeirra hafa varanleg áhrif á alþjóðamenninguna. Með því að styðja þessa meistara tilfinninganna og stofnanirnar þar sem þeir starfa leitast Rolex við að varðveita og færa áfram öll þau mannlegu grundvallargildi sem því eru kærust.
Þessi skuldbinding við framtíðina kemur einnig fram í gegnum Perpetual Planet Initiative sem er starfrækt af þeim sem deila af sérþekkingu sinni til að bregðast við umhverfisáskorunum okkar tíma. Í dag byggja þessir áhrifavaldar á arfleifð fyrstu könnuðanna og leitast við að bæta skilning okkar á heiminum til að geta fundið leiðir til að vernda hann.

Nýja Superlative Chronometer vottorðið
Árið 2026 ætlar Rolex að bæta við skilyrðum fyrir Superlative Chronometer vottorðið: þol gegn segulkröftum, áreiðanleika og sjálfbærni verður bætt við nákvæmni, vatnsþéttni, sjálftrekkingu og sjálfvirkni, og verða samtals að sjö grundvallarstoðum yfirburða. Þessi stöðuga þörf til að bæta sig hefur alltaf verið grundvallaratriði hjá Rolex og þessi stefna endurspeglast í öllum úrum þess. Þessi skuldbinding kemur meðal annars fram með því að ýta stöðugt á ystu mörk í áframhaldandi leit merkisins að nákvæmni í tímamælingum. Afraksturinn er hönnun á nýjum optískum atómklukkum sem gefa merkinu aðgang að hingað til óþekktum árangri í nákvæmni tímamælinga. Þessi glænýju verkefni eru nýju tímaverðir Rolex og eru hluti af hinu alþjóðlega kerfi sem heldur utan um samræmda heimstímann (UTC).









