Fara beint í efni
Skip to main content
  • Datejust 31

Rolex

Datejust 31

Oyster, 31 mm, gull og demantar

RMC: M278288RBR-0041

8.250.000 kr.

Watch image gallery

Watch image gallery

Viewing image 1 of 3

  • Datejust 31 - Image 1

Rolex International Guarantee card in green leather holder

Specifications

Módel týpa
278288RBR
Ól / keðja
President, hálfhringlaga hlekkir í þremur hlutum
Úrkassi
Oyster, 31 mm, gull og demantar
Gangverk
Stöðugt, vélrænt, sjálftrekkjandi
Vatnsvörn
Vatnshelt við 100 metra / 330 fet
Verkgerð
2236, framleiðandi Rolex
Hringur
Greypt demöntum
Hleðsluforði
U.þ.b. 55 klukkustundir
Skífa
Rauð ombré greypt demöntum
Vottun
Superlative Chronometer (opinber chronometer vottun + Rolex vottun eftir að úrverkið er sett í kassann)

Rauð ombré skífa

Ombré skífan er með litaðan flöt fyrir miðju sem breytist í djúpsvartan í kringum brúnina. Skífan er áframhald hönnunar sem Rolex kynnti á 9. áratug síðasta aldar og aftur árið 2019. Til að búa til skífur með litskyggingu þarf að nota svart lakk, sem er vandvirknisverk sett í hendur sérfræðings sem hefur það verkefni að tryggja að liturinn dekkist jafnt og smám saman.

Rauð ombré skífa

Hringur greyptur demöntum

Gimsteinarnir rata síðan til sérfræðinga fyrirtækisins í ísetningu sem búa yfir sérþekkingu við að koma þeim fyrir og kalla fram náttúrulegan ljóma steinanna. Steininum er komið fyrir, með listbragði og handverki gullsmiðs, og nákvæmlega lagður að hinum og síðan festur í gull- eða platínuumgjörð. Fyrir utan eðlislæg gæði steinanna, ýta fleiri viðmið undir fegurð ísettra gimsteina hjá Rolex: Nákvæm samstilling hæðar, stefna þeirra og staðsetning, regluleiki, styrkur og hlutföll ísetningarinnar sem og flókinn frágangur málmsmíðinnar. Glitrandi samspil sem bætir úrið og heillar þann sem gengur með það.

Hringur greyptur demöntum

18 kt gull

Með því að reka eigin málmsteypu býr Rolex yfir framúrskarandi getu til að steypa hágæða 18 kt gullblöndur. Samkvæmt hlutfalli af silfri, kopar, platínu eða palladíum sem bætt er við fást mismunandi tegundir af 18 kt gulli: gult, bleikt eða hvítt. Þetta fer aðeins fram með hreinustu málmum og eru þeir skoðaðir vandlega af rannsóknarstofunni á staðnum þar sem notast er við nýjustu tækni. Þetta er gert áður en gullið er mótað og lagað þar sem sama áhersla á nákvæmni er viðhöfð. Skuldbinding Rolex við ágæti hefst við upptökin.

18 kt gull

Framboð módela

Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.

Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.

Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.

Hafðu samband

Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.

Skref 1 af 3: Skrifaðu skilaboð

Model Contact

Senda skilaboð: Skrifaðu skilaboð

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega.

Halda áfram að skoða