Rolex
Day-Date 40
Oyster, 40 mm, gull
RMC: M228238-0042
7.320.000 kr.

Rolex
Oyster, 40 mm, gull
RMC: M228238-0042
7.320.000 kr.

Rifflaður hringur Rolex er einkennandi. Upphaflega þjónaði rifflun Oyster hringsins hagnýtum tilgangi: það skrúfaði hringinn á úrkassann til að tryggja vatnsþéttni úrsins. Það var því eins og rifflunin aftan á úrbakinu sem var einnig skrúfað á úrkassann til að skapa vatnsþéttni með sérstökum verkfærum Rolex. Með tímanum varð rifflunin fagurfræðilegur þáttur, ósvikið auðkenni Rolex. Í dag er rifflaði hringurinn einkennandi og úr gulli á Day-Date 40.
Lakk sameinar næstum takmarkalausa litamöguleika við styrkleika og slétta áferð. Lökkunartæknin felst í því að setja sex þunn lög af lakki á grunnplötu úr látúni. Síðan er litlaust yfirlakk borið á til að gefa litnum eða litblænum dýpt og glans. Þegar yfirlakkið er þurrt er yfirborð skífunnar pússað til að magna upp litinn, síðan er skífan tilbúin fyrir prentun og applique-ásetningu.
Með því að reka eigin málmsteypu býr Rolex yfir framúrskarandi getu til að steypa hágæða 18 kt gullblöndur. Samkvæmt hlutfalli af silfri, kopar, platínu eða palladíum sem bætt er við fást mismunandi tegundir af 18 kt gulli: gult, bleikt eða hvítt. Þetta fer aðeins fram með hreinustu málmum og eru þeir skoðaðir vandlega af rannsóknarstofunni á staðnum þar sem notast er við nýjustu tækni. Þetta er gert áður en gullið er mótað og lagað þar sem sama áhersla á nákvæmni er viðhöfð. Skuldbinding Rolex við ágæti hefst við upptökin.
Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.
Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.
Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.
Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.
Skref 1 af 3: Skrifaðu skilaboð

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega.