Rolex
Oyster Perpetual 28
Oyster, 28 mm, gull
RMC: M276208-0002
4.590.000 kr.

Rolex
Oyster, 28 mm, gull
RMC: M276208-0002
4.590.000 kr.

Á lakkskífu Oyster Perpetual 28 eru þrjú af klukkustundamerkjunum – við tölustafina 3, 6 og 9 – úr náttúrulegum steini, í fyrsta skipti frá Rolex. Blóðsteinninn hefur margvísleg græn litbrigði og er skorinn í keilulaga form á efra yfirborðinu til að sýna vel einstaka uppbyggingu hans og lögun og koma í veg fyrir alla endurspeglun.
Með því að reka eigin málmsteypu býr Rolex yfir framúrskarandi getu til að steypa hágæða 18 kt gullblöndur. Samkvæmt hlutfalli af silfri, kopar, platínu eða palladíum sem bætt er við fást mismunandi tegundir af 18 kt gulli: gult, bleikt eða hvítt. Þetta fer aðeins fram með hreinustu málmum og eru þeir skoðaðir vandlega af rannsóknarstofunni á staðnum þar sem notast er við nýjustu tækni. Þetta er gert áður en gullið er mótað og lagað þar sem sama áhersla á nákvæmni er viðhöfð. Skuldbinding Rolex við ágæti hefst við upptökin.
Oyster keðjan er fullkomin samsetning forms og virkni, fagurfræði og tækni. Þessi sterka og þægilega málmkeðja var sett á markað á síðari hluta 4. áratugar síðustu aldar og er með breiða, flata hlekki í þremur hlutum og er alhliða keðja í vörulínu Oyster. Hjá Oyster Perpetual módelum er Oyster keðjan með Oysterclasp.
Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.
Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.
Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.
Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.
Skref 1 af 3: Skrifaðu skilaboð

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega.