Fara beint í efni
Skip to main content
  • Day-Date 40

Rolex

Day-Date 40

Oyster, 40 mm, Everose gull

RMC: M228235-0055

7.880.000 kr.

Watch image gallery

Watch image gallery

Viewing image 1 of 3

  • Day-Date 40 - Image 1

Rolex International Guarantee card in green leather holder

Specifications

Módel týpa
228235
Ól / keðja
President, hálfhringlaga hlekkir í þremur hlutum
Úrkassi
Oyster, 40 mm, Everose gull
Gangverk
Stöðugt, vélrænt, sjálftrekkjandi
Vatnsvörn
Vatnshelt við 100 metra / 330 fet
Verkgerð
3255, framleiðandi Rolex
Hringur
Riffluð
Hleðsluforði
U.þ.b. 70 klukkustundir
Skífa
Blágrá ombré
Vottun
Superlative Chronometer (opinber chronometer vottun + Rolex vottun eftir að úrverkið er sett í kassann)

Rifflaður hringur

Rifflaður hringur Rolex er einkennandi. Upphaflega þjónaði rifflun Oyster hringsins hagnýtum tilgangi: það skrúfaði hringinn á úrkassann til að tryggja vatnsþéttni úrsins. Það var því eins og rifflunin aftan á úrbakinu sem var einnig skrúfað á úrkassann til að skapa vatnsþéttni með sérstökum verkfærum Rolex. Með tímanum varð rifflunin fagurfræðilegur þáttur, ósvikið auðkenni Rolex. Í dag er rifflaði hringurinn einkennandi og úr gulli á Day-Date 40.

Rifflaður hringur

Dökkgrá ombré skífa

Útgáfan í 18 kt Everose gulli er með gráa ombré skífu – alveg nýjan lit fyrir þessa skífu, sem er með litað yfirborð í miðjunni og skiptir yfir í djúpsvartan þegar nær kemur að brúnunum. Einnig er þessi Ombré skífa með einföldum rómverskum tölustöfum í fyrsta skipti og skoruð klukkustundamerki úr 18 kt bleiku gulli. Þar til nú voru ombré skífur hjá Rolex með klukkustundamerki greypt demöntum og voru sérstaklega fyrir Day-Date 36. Skífan er áframhald hönnunar sem Rolex kynnti á 9. áratug síðasta aldar og aftur árið 2019. Til að búa til skífur með litskyggingu þarf að nota svart lakk, sem er vandvirknisverk sett í hendur sérfræðings sem hefur það verkefni að tryggja að liturinn dekkist jafnt og smám saman.

Dökkgrá ombré skífa

18 kt Everose gull

Til að varðveita fegurð bleika gullúranna sinna skapaði Rolex og fékk einkaleyfi á 18 kt bleikri gullblöndu í eigin málmsteypu sinni: Everose gull. 18 kt Everose var fyrst sett á markaðinn árið 2005 og er notað í öllum Rolex Oyster módelum í bleiku gulli.

18 kt Everose gull

Framboð módela

Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.

Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.

Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.

Hafðu samband

Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.

Skref 1 af 3: Skrifaðu skilaboð

Model Contact

Senda skilaboð: Skrifaðu skilaboð

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega.

Rolex Day-Date vörulínan

Halda áfram að skoða