
Yacht-Master 37
Oyster, 37 mm, Oystersteel stál og Everose gull
2.650.000 kr.

Oyster Perpetual Yacht-Master er táknrænt siglingaúr endurspeglar það forréttindasamband sem er á milli Rolex og siglingaheimsins sem nær allt til 6. áratugs síðustu aldar.

Oyster, 37 mm, Oystersteel stál og Everose gull
2.650.000 kr.

Oyster, 40 mm, Oystersteel stál og platína
2.010.000 kr.

Oyster, 42 mm, hvítagull
5.820.000 kr.

Oyster, 40 mm, Everose gull
5.480.000 kr.

Oyster, 42 mm, RLX títan
2.460.000 kr.

Oyster, 42 mm, gull
5.540.000 kr.


Yacht-Master er með auðþekkjanlega 60 mínútna hring sem snýst í báðar áttir og sem er gerður eingöngu úr eðalmálmum (Everose gulli eða platínu) eða með svörtu Cerachrom innleggi úr hátækni keramíki. Upphækkaðar, fægðar kvarðanir og tölustafir eru áberandi við mattan bakgrunninn. Þessi einkennandi og hagnýti hringur – sem gerir notandanum til dæmis kleift að reikna út siglingatímann á milli tveggja bauja – er einnig lykilþáttur í einkennandi útliti úrsins.

Yacht-Master er sterkbyggt, nákvæmt og fullkomlega vatnsþétt og er eitt af einu Rolex Professional úrunum sem fást í nokkrum stærðum (37, 40 og 42 mm).
Yacht-Master 37 og Yacht-Master 40 fást í Rolesium útgáfu (blöndu af Oystersteel og platínu) og í Everose Rolesor útgáfu (blöndu af Oystersteel og Everose gulli) með hring úr eðalmálmi og Oyster keðju. Bæði módelin fást einnig í 18 kt Everose gulli með Cerachrom hringinnleggi úr svörtu keramíki og Oysterflex armband.

Bæði módelin fást einnig í 18 kt Everose gulli með Cerachrom hringinnleggi úr svörtu keramíki og Oysterflex armband. Yacht-Master 42 fæst í 18 kt. gulu eða hvítagulli með Oysterflex armband og í RLS títani, sérstaklega léttri málmblöndu með einstöku tæringarþoli og miklum kraftrænum styrk, með Oyster keðju.


Yacht-Master er einstaklega auðlæsileg við allar aðstæður, jafnvel í myrkri þökk sé Chromalight lýsingunni: stóru klukkustundamerkin og breiðir vísarnir eru fyllt eða húðuð með ljómandi efni sem gefur frá sér langvarandi bláan ljóma.

Yacht-Master módelin eru með verkgerð 2236 (Yacht-Master 37) eða verkgerð 3235 (Yacht-Master 40 og Yacht-Master 42), sjálftrekkjandi vélrænt gangverk hannað og framleitt eingöngu af Rolex. Þau bjóða upp á framúrskarandi afköst, sérstaklega hvað varðar nákvæmni, hleðsluforða, þægindi og áreiðanleika. Hleðsluforði verkgerðar 2236 er allt að 55 klukkustundir og um það bil 70 klukkustundir hjá verkgerð 3235.

Yacht-Master er með Superlative Chronometer vottun. Hvert og eitt úr sem er sent frá verkstæðum Rolex fær þessa einstöku vottun sem staðfestir framúrskarandi virkni þeirra á úlnliðnum. Þessi vottun er undir ströngu eftirliti óháðra svissneskra aðila sem eru viðurkenndir á heimsvísu.
Superlative Chronometer vottunin er sýnd með græna innsiglinu sem fylgir öllum Rolex úrum og henni fylgir fimm ára ábyrgð.