
Yacht-Master II
Oyster, 44 mm, gull
8.820.000 kr.

Oyster Perpetual Yacht-Master II var hannað sérstaklega fyrir ráslínuna í kappsiglingum og færir saman siglingaandann og tæknilega yfirburði.


Yacht-Master II fæst í Oystersteel eða 18 kt gulli og er með snúningshring í báðar áttir og Cerachrom innlegg með 60 mínútna kvörðun úr bláu keramik. Hátækni keramikið sem Rolex notar er einstaklega hart og svo gott sem rispuhelt og nota þarf sérstök verkfæri til að vinna það. Mótaða, innfellda kvörðunin og tölustafirnir á bláa Cerachrom innlegginu eru húðaðir platínu eða gulli með PVD (eðlisfræðilegri eimhúðun). Hver mínúta er merkt í fyrsta hálftíma kvörðunarinnar. Þegar hringurinn er í hlutlausri stöðu er hægt að lesa síðustu 30 sekúndur niðurtalningarinnar nákvæmar með sekúnduvísi skeiðklukkunnar í miðjunni. Hringurinn með kvörðun er með rifflaða brún sem veitir frábært grip og gerir notandanum einnig kleift að mæla tímalotur auðveldlega, til dæmis siglingatímann á milli tveggja bauja.

Það er auðvelt að nota niðurtalninguna hjá Yacht-Master II. Hún var hönnuð til að hjálpa siglingaköppum á enn skilvirkari hátt á hinum mikilvæga upphafspunkti kappsiglinga.
Niðurtalningin er stillt með neðri hnappinum. Í hvert skipti sem ýtt er á hnappinn færist mínútuvísirinn um eitt þrep. Notandinn ýtir einfaldlega á hnappinn eins oft og hann þarf þar til mínútuvísirinn bendir á sömu tölu og niðurtalningin sýnir. Lengd niðurtalningarinnar er vistuð í vélræna minni gangverksins. Þetta kemur í veg fyrir að siglingakappinn þurfi að endurstilla úrið í næstu keppni sem hefur sama niðurtalningartíma. Til að gera það enn auðveldara að lesa af tímanum snýst niðurtalningartíminn og sekúnduvísarnir rangsælis, í fyrsta skipti hjá Rolex.

acht-Master II er með Oyster keðju. Þessi málmkeðja var hönnuð seint á 4. áratug síðustu aldar, með breiða og dálítið sveigða hlekki, og er þekkt fyrir að vera sterkbyggð.
Oyster keðjan hjá Yacht-Master II úr Oystersteel eða 18 kt gulli er með grennri Oysterlock öryggislás sem leggst saman. Þessi lás sem leggst saman kemur í veg fyrir að keðjan opnist óviljandi og er einnig með Easylink-stækkunarhlekk til að notandinn geti stillt lengd keðjunnar auðveldlega um u.þ.b. 5 mm. Hjá úrinu úr 18 kt gulli er Oyster keðjan með einkaleyfisskráð keramikinnlegg hönnuð af merkinu inni í hlekkjunum til að koma í veg fyrir slit og gera keðjuna þjálli á úlnliðnum.

Ein útgáfan af Yacht-Master II er úr Oystersteel, einstakri málmblöndu sem viðheldur gljáanum við jafnvel óblíðustu aðstæður. Hin útgáfan af Yacht-Master II er gerð úr 18 kt gulli. Gull frá Rolex gefur frá sér heillandi ljóma sem er afrakstur áralangra rannsókna og hönnunar hjá merkinu til að fullkomna vinnslu eðalmálma. Eitt af séreinkennum Rolex í heimi úrsmíðanna er að það velur að hafa full á stjórn á sköpun, steypusmíði og mótun á eigin 18 kt gullblöndum með því að stofna sína eigin málmsteypu.

Yacht-Master II er útbúið með verkgerð 4162, þróuð út frá verkgerð 4161 sem var notuð til að knýja fyrri útgáfu módelsins. Verkgerð 4162 er hönnuð sérstaklega fyrir ræsingu kappsiglinga og er með einstakan eiginleika sem Rolex hannaði: stillanlega niðurtalningu með vélrænu minni sem er hægt að samstilla á ferðinni. Með þessu kerfi, sem bíður einkaleyfis, er niðurtalningin stillt einfaldlega með því að ýta á neðri hnappinn, sem gerir það auðvelt í notkun.
Verkgerð 4162 er einnig með nokkrar mikilvægar nýjungar sem Rolex hefur tekið í notkun í gangverkin sín, þar á meðal Chronergy akkerið. Þökk sé lögun tunnunnar framúrskarandi virkni deiliverksins endist hleðsluforði gangverksins í um það bil 72 klukkustundir. Verkgerð 4162 er fallega frágengið með brúm sem eru skreyttar með Rolex Côtes de Genève og útskorið sjálfvindulóð.


Yacht-Master II er með Superlative Chronometer vottun, rétt eins og öll úr frá Rolex. Hvert og eitt úr sem er sent frá verkstæðum Rolex fær þessa einstöku vottun sem staðfestir framúrskarandi virkni þeirra á úlnliðnum. Þessi vottun er undir ströngu eftirliti óháðra svissneskra aðila sem eru viðurkenndir á heimsvísu.
Superlative Chronometer vottunin er sýnd með græna innsiglinu og henni fylgir fimm ára ábyrgð.