Rolex
Yacht-Master II
Oyster, 44 mm, Oystersteel stál
RMC: M126680-0001
3.090.000 kr.

Rolex
Oyster, 44 mm, Oystersteel stál
RMC: M126680-0001
3.090.000 kr.

Yacht-Master II er með snúningshring í báðar áttir og 60 Cerachrom innlegg með 60 mínútna kvörðun úr bláu keramik. Hátækni keramikið sem Rolex notar er einstaklega hart og svo gott sem rispuhelt og nota þarf sérstök verkfæri til að vinna það. Liturinn á því er stöðugur og upplitast ekki í útfjólubláu ljósi. Þetta keramik er óvirkt og getur ekki tærst, þökk sé efnafræðilegri samsetningu þess. Mótaða, innfellda kvörðunin og tölustafirnir á bláa Cerachrom innlegginu eru húðaðir platínu eða gulli með PVD (eðlisfræðilegri eimhúðun). Hver mínúta er merkt í fyrsta hálftíma kvörðunarinnar. Þegar hringurinn er í hlutlausri stöðu er hægt að lesa síðustu 30 sekúndur niðurtalningarinnar nákvæmar með sekúnduvísi skeiðklukkunnar í miðjunni. Hringurinn með kvörðun er með rifflaða brún sem veitir frábært grip og gerir notandanum einnig kleift að mæla tímalotur auðveldlega, til dæmis siglingatímann á milli tveggja bauja.
Skífan tryggir að auðvelt er að lesa allar aðgerðirnar. Skífan er húðuð með nýju hvítu lakki sem er matt til að draga úr endurspeglun og á henni eru applique klukkustundamerkin sem eru táknræn fyrir úrin í Professional-línunni. Skáhallandi kragi, ætlaður fyrir niðurtalninguna, er staðsettur á skífuna af einstakri nákvæmni og er með skráða umsókn um einkaleyfi. Hann er merktur frá 10 til 0 mínútur, með hálfar mínútur merktar með þríhyrningum.
Rolex notar Oystersteel í kössum stálúra sinna. Oystersteel er sérstaklega þróað af vörumerkinu og tilheyrir 904L stálfjölskyldunni, málmblöndum sem oftast eru notaðar í hátækni- og í geim- og efnaiðnaði þar sem hámarksþol gegn tæringu er nauðsynlegt. Oystersteel er með mikið þol, býður upp á framúrskarandi áferð eftir slípun og viðheldur fegurð sinni jafnvel í erfiðustu umhverfum.
Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.
Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.
Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.
Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.
Skref 1 af 3: Skrifaðu skilaboð

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega.