Fara beint í efni
Skip to main content
Perpetual 1908

Explorer frá Rolex
Stórbrotið ævintýri

Oyster Perpetual Explorer II þróaðist út frá sterkri tengingu Rolex við könnunarleiðangra.

Perpetual 1908

Explorer var skapað eftir hina sögulegu göngu á topp Everest árið 1953 og býður upp á framúrskarandi nákvæmni í tímamælingum, jafnvel við erfiðustu aðstæður.

Upp úr 1930 byrjaði Rolex að útbúa fjölda leiðangra með Oyster Perpetual úrum. Umsagnirnar sem bárust voru notaðar til að hanna svokallaða Professional vörulínu: úr sem eru einnig notuð sem verkfæri, til dæmis Explorer. Rolex úr hafa tekið þátt í nokkrum af mestu ævintýrum mannkynsins. Eitt slíkt ævintýri var leiðangurinn upp á Everest-fjall árið 1953, undir forystu Sir John Hunt, þar sem Sir Edmund Hillary og Tenzing Norgay urðu þeir fyrstu til að ná upp á tindinn á hæsta fjalli í heimi.

Perpetual 1908

Hannað fyrir könnun

Explorer kom á markað árið 1953 og aðgreindi sig með einfaldri hönnun og mjög læsilegri svartri skífu með stórum klukkutímamerkjum og einkennandi tölustöfunum 3, 6 og 9. Þetta er verkfæri sem var gert til að sýna tímann nákvæmlega við allar aðstæður. Það er auðvelt að lesa á skífuna, jafnvel í myrkri, þökk sé Chromalight lýsingunni. Í dag fæst Explorer í 36 mm – sömu stærð og upprunalega módelið frá 1953 – og í 40 mm stærð.

Perpetual 1908

Þol fram að ystu mörkum

Úrin í Explorer línunni hafa þróast stöðugt til að uppfylla þarfir könnuða og orðið sterkbyggðari og áreiðanlegri. Explorer 36 fæst í Oystersteel-stál eða gulri Rolesor útgáfu (blöndu af Oystersteel og gulu gulli) og Explorer 40 er gert eingöngu úr Oystersteel. Oystersteel-stál er einstök málmblanda, sérstaklega hönnuð fyrir Rolex og með frábært þol gegn tæringu.

Módelin eru með Oyster keðju sem er með hlekki í þremur hlutum og er þekkt fyrir styrkleika sinn. Hún er með Oysterlock öryggislás sem leggst saman, sem er sérhönnuð af Rolex og með skráð einkaleyfi, til að keðjan opnist ekki fyrir slysni. Úrið er einnig með Easylink comfort stækkunarhlekk sem merkið hannaði og gerir notandanum kleift að stilla keðjuna auðveldlega um u.þ.b. 5 mm.

Perpetual 1908

Verkgerð 3230

Explorer 36 og Explorer 40 eru með verkgerð 3230, sjálftrekkjandi vélrænt gangverk hannað og framleitt eingöngu af Rolex. Þetta gangverk hefur fjölda einkaleyfa og er einstakt tæknilegt afrek. Það býður upp á framúrskarandi afköst, sérstaklega hvað varðar nákvæmni, hleðsluforða, þægindi og áreiðanleika.

Perpetual 1908

Superlative Chronometer vottun

Explorer er með Superlative Chronometer vottun. Hvert og eitt úr sem er sent frá verkstæðum Rolex fær þessa einstöku vottun sem staðfestir framúrskarandi virkni þeirra á úlnliðnum. Þessi vottun er undir ströngu eftirliti óháðra svissneskra aðila sem eru viðurkenndir á heimsvísu.

Superlative Chronometer vottunin er sýnd með græna innsiglinu sem fylgir öllum Rolex úrum og henni fylgir fimm ára ábyrgð.

Halda áfram að skoða