

Ný úr árið 2026
Datejust 41 frá Rolex
Skyggir á allt annað
Rolex kynnir nýja útgáfu af Oyster Perpetual Datejust 41 úr hvítu Rolesor (sem er blanda af Oystersteel og hvítagulli), með einstakri grænlakkaðri ombré skífu.
Úrið sameinar fullkomlega nokkur af helstu einkennum merkisins: rifflaðan hring, græna litinn, sterkbyggt stál og dýrmætt hvítagull.

Grænlökkuð ombré skífa
Skífan í nýju útgáfunni af Datejust 41 er alveg lakkhúðuð – fyrsta lakkhúðaða ombré skífan allt frá því þessi hönnun var kynnt á ný í vörulista merkisins árið 2019 Grunnplatan er húðuð með grænu lakki og síðan er litskyggingin búin til með því að úða svörtu lakki yfir með jafnri dekkingu. Þessi aðferð er notuð á allar ombré skífur. Hvíta áletrunin er sérstaklega greinileg og er með Chromalight klukkustundamerki. Dagsetningarglugginn virðist koma skýrar fram með skörpum skilum á móti ombré brún skífunnar. Það býður upp á ferskt sjónarhorn á þetta sígilda úr og minnir á mikilvægt hlutverk þess í sögu Oyster.

Rifflaður hringur
Einstakt merki
Rifflaði hringurinn er gerður eingöngu úr eðalmálmi. Áður en rifflaða áferðin varð að útlitseinkenni Rolex Classic úranna hjálpaði hún úrsmiðum að skrúfa hringinn á Oyster úrkassann til að tryggja vatnsþéttni úrsins.
Hvítt Rolesor
Eðal málmblanda
Rolesor hefur verið helsta einkenni merkisins allt frá því snemma á 4. áratug 20. aldarinnar og er blanda af gulli og stáli sem gefur bæði fágun og styrk. Hugmyndin er einföld. Sumir þættir úrkassans og armbandsins eru gerðir úr gulli, hvítagulli eða Everose gulli, á meðan aðrir þættir eru gerðir úr Oystersteel-stáli. Hjá hvítum Rolesor módelum er eingöngu hringurinn úr hvítagulli.

Oyster keðja
Táknræn og sterkbyggð
Oyster Perpetual Datejust 41 úr hvítu Rolesor með grænlakkaðri ombré skífu og riffluðum hring ásamt Oyster keðju. Þessi keðja með hlekki í þremur hlutum var hönnuð seint á 4. áratug síðustu aldar og er þekkt fyrir styrkleika sinn. Keðjan er með Oysterclasp sem leggst saman. Hún er einnig með Easylink-stækkunarhlekk sem Rolex hannaði og gerir notandanum kleift að stilla lengd keðjunnar auðveldlega um u.þ.b. 5 mm.

Verkgerð 3235
Öflug tækni
Datejust 41 er búið calibre 3235, gangverki sem er hannað og framleitt algjörlega hjá Rolex. Sjálftrekkjandi vélræna gangverkið sýnir dagsetninguna og er með bláa Parachrom-spíralfjöður og Chronergy akkeri. Það býður upp á framúrskarandi afköst, sérstaklega hvað varðar nákvæmni, sjálfvirkni, þægindi og áreiðanleika. Hjá verkgerð 3235 endist hleðsluforðinn í u.þ.b. 70 klukkustundir, þökk sé tunnulögun hennar og framúrskarandi virkni deiliverksins.


Superlative Chronometer
vottun
Oyster Perpetual Datejust 41 er með Superlative Chronometer vottun. Hvert og eitt úr sem er sent frá verkstæðum Rolex fær þessa einstöku vottun sem staðfestir framúrskarandi virkni þeirra á úlnliðnum. Þessi vottun er undir ströngu eftirliti óháðra svissneskra aðila sem eru viðurkenndir á heimsvísu.
Árið 2026 hefur Superlative Chronometer vottunin verið styrkt enn frekar með þremur nýjum prófum: þol gegn segulsviðum, áreiðanleiki og þægindi. Þessi skilyrði eru notuð í gegnum öll hönnunar- og framleiðsluskref úranna. Hundruð athugana og staðfestinga eru framkvæmd í þessum skrefum til að prófa frammistöðu úrsins. Þau eru viðbót við skilyrðin sem voru sett fram þegar vottunin var endurskilgreind árið 2015 og stýra nákvæmni, vatnsþéttni, sjálftrekkingu og hleðsluforða. Það árið setti Rolex saman sérstakt verklag til að prófa fullsmíðuð úr, sem var framkvæmt inni í manufacture verksmiðjunni með sjálfvirkum búnaði. Kröfurnar um nákvæmni eru sérstaklega strangar: þær eru mældar eftir að gangverkið hefur verið sett í kassann og nákvæmni úrsins má ekki skeika um meira en á milli -2 og + 2 sekúndur á dag. Hámarksfrávikin sem Rolex samþykkir fyrir nákvæmni fullsmíðaðs úrs eru töluvert þrengri en samþykktu frávirkin fyrir opinbera vottun gangverksins.
Superlative Chronometer vottunin er sýnd með græna innsiglinu sem fylgir öllum Rolex úrum og henni fylgir fimm ára ábyrgð.




