Fara beint í efni
Skip to main content
Oyster Perpetual 41

Ný úr árið 2026

Oyster Perpetual 36 frá Rolex
Göfug áletrun

Rolex kynnir nýja útgáfu af Oyster Perpetual 36 úr Oystersteel með skífu sem er skreytt með mjög myndrænu og litríku Jubilee mynstri sem sýnir stafina í heiti Rolex.

Þetta mynstur sækir innblástur í hefðbundið útlit merkisins og er sannkallað tækniafrek. Með sinni einstöku geislandi skífu hyllir Oyster Perpetual 36 sköpunargáfu merkisins og listasmíð í skífugerð.

Introduction to Rolex

Skífa
Myndrænt og litríkt mynstur

Skífan í Oyster Perpetual 36 er hárfínt og nútímalegt afturhvarf til hins táknræna Jubilee mynsturs sem kom fyrst fram í lok 8. áratugs síðustu aldar. Hún sýnir stafina í nafni Rolex í hvorki meira né minna en tíu litum. Það krefst einstakrar natni að gera þetta mynstur þar sem litirnir eru ekki settir á samtímis, heldur hver á eftir öðrum. Einnig þarf ítrustu nákvæmni til að tryggja að öll formin og stafirnir sem mynda mynstrið séu fullkomlega staðsett.

Perpetual 1908

Oystersteel
Sérstök málmblanda

Nýja útgáfan af Oyster Perpetual 36 er gerð úr Oystersteel. Þessi sérstaka málmblanda með framúrskarandi ljóma er framleidd eingöngu fyrir Rolex. Hún tilheyrir stáli af gerð 904L. Þessar málmblöndur eru oftast notaðar í hátækniumhverfi, til dæmis í flugvéla- og efnaiðnaði. Þol þeirra gegn tæringu jafnast á við eðalmálma.

Perpetual 1908

Oyster úrkassi
Tákn um vatnsþéttni

Oyster úrkassinn hjá Oyster Perpetual 36 er vatnsheldur við allt að 100 metra dýpi (330 fet). Miðjukassinn er gerður úr heilu stykki af Oystersteel og er með kúptan hring. Úrbakið er með fíngerðar rákir og er skrúfað þétt niður með sérstöku verkfæri sem aðeins viðurkenndir úrsmiðir nota. Hann er með Twinlock trekkjara og tvöfalt vatnsvarnarkerfi sem skrúfast þétt niður í kassann. Glerið er úr nær alveg rispuheldum safír og er með glampavörn.

Perpetual 1908

Oyster keðja
Táknræn og sterkbyggð

Oyster keðjan var hönnuð seint á 4. áratug síðustu aldar og kemur með öllum úrunum í Oyster Perpetual vörulínunni. Þessi málmkeðja er sterkbyggð, þægileg og falleg og er gerð úr þremur breiðum og dálítið sveigðum hlekkjum. Oyster keðjan hjá Oyster Perpetual 36 er með Oysterclasp og Easylink-stækkunarhlekk, sem gerir notandanum kleift að stilla lengd keðjunnar auðveldlega um u.þ.b. 5 mm til að gera hana strax þægilegri.

Perpetual 1908

Verkgerð 3230
Öflug tækni

Oyster Perpetual er búið verkgerð 3230, gangverki sem er hannað og framleitt eingöngu af Rolex. Þetta sjálftrekkjandi vélræna gangverk er með bláa Parachrom-spíralfjöður og Chronergy akkeri og hefur framúrskarandi afköst, sérstaklega hvað varðar nákvæmni, sjálfvirkni, þægindi og áreiðanleika. Hleðsluforðinn endist í u.þ.b. 70 klukkustundir, þökk sé tunnulögun hennar og framúrskarandi virkni deiliverksins.

Perpetual 1908
Perpetual 1908

Superlative Chronometer
vottun

Oyster Perpetual 36 er með Superlative Chronometer vottun. Hvert og eitt úr sem er sent frá verkstæðum Rolex fær þessa einstöku vottun sem staðfestir framúrskarandi virkni þeirra á úlnliðnum. Þessi vottun er undir ströngu eftirliti óháðra svissneskra aðila sem eru viðurkenndir á heimsvísu.

Árið 2026 hefur Superlative Chronometer vottunin verið styrkt enn frekar með þremur nýjum prófum: þol gegn segulsviðum, áreiðanleiki og þægindi. Þessi skilyrði eru notuð í gegnum öll hönnunar- og framleiðsluskref úranna. Hundruð athugana og staðfestinga eru framkvæmd í þessum skrefum til að prófa frammistöðu úrsins. Þau eru viðbót við skilyrðin sem voru sett fram þegar vottunin var endurskilgreind árið 2015 og stýra nákvæmni, vatnsþéttni, sjálftrekkingu og hleðsluforða. Það árið setti Rolex saman sérstakt verklag til að prófa fullsmíðuð úr, sem var framkvæmt inni í manufacture verksmiðjunni með sjálfvirkum búnaði. Kröfurnar um nákvæmni eru sérstaklega strangar: þær eru mældar eftir að gangverkið hefur verið sett í kassann og nákvæmni úrsins má ekki skeika um meira en á milli -2 og + 2 sekúndur á dag. Hámarksfrávikin sem Rolex samþykkir fyrir nákvæmni fullsmíðaðs úrs eru töluvert þrengri en samþykktu frávirkin fyrir opinbera vottun gangverksins.

Superlative Chronometer vottunin er sýnd með græna innsiglinu sem fylgir öllum Rolex úrum og henni fylgir fimm ára ábyrgð.

Halda áfram að skoða