

Ný úr árið 2026
Oyster Perpetual 28 og 34 frá Rolex
Ný gullöld
Oyster Perpetual 28 og Oyster Perpetual 34 úr 18 kt gulli eru skemmtileg og fáguð og bjóðast í útgáfum með lakkskífum.
Oyster Perpetual 28 er gert úr 18 kt gulli og er með green stone lakkskífu, á meðan Oyster Perpetual fæst í 18 kt Everose gulli með blue stone lakkskífu. Klukkustundamerkin við 3, 6 og 9 eru gerð úr náttúrulegum steini, í fyrsta skipti hjá Rolex.

Satínáferð
Nýtt samspil
Úrkassinn og armbandið á nýju útgáfunum af Oyster Perpetual 28 og Oyster Perpetual 34 eru aðallega með satínáferð. Þetta útlit á módelum í núverandi úrvalinu af Oyster Perpetual gefur yfirborðinu mjúka og ljómandi áferð. Þetta er í fyrsta skipti sem satínáferð er notuð á úr sem eru gerð eingöngu úr eðalmálmi. Kúpti hringurinn er með fægða áferð sem gefur frá sér bjarta endurspeglun.

18 kt gull
og 18 kt Everose gull
Einstakur ljómi
Eitt af séreinkennum Rolex í heimi úrsmíðanna er að það velur að hafa full á stjórn á sköpun, steypusmíði og mótun á eigin 18 kt gullblöndum með því að stofna sína eigin málmsteypu. Þetta gerir merkinu kleift að búa til gullblöndur í hæstu gæðum sem eru þekktar fyrir einstakan hreinleika og ljóma. 18 kt gull er málmblanda sem hentar einstaklega vel í úrsmíði og er gerð úr 750 ‰ (þúsundasta hlut) af hreinu gulli. Hægt er að blanda ólíkar gerðir af gulli með því að bæta við silfri, kopar eða öðrum málmum í réttum hlutföllum: gull, hvítagull eða Everose gull, sem er einkaleyfisskráð bleikt gull þróað af Rolex.

Klukkustundamerki úr náttúrulegum steini
Hrífandi nýjung
Á lakkskífunum á sumum af nýju útgáfunum af Oyster Perpetual 34 og Oyster Perpetual 28 úr 18 kt gulli eru þrjú af klukkustundamerkjunum – við tölustafina 3, 6 og 9 – gerð úr náttúrulegum steini, í fyrsta skipti hjá Rolex. Steinarnir eru með keilulaga form á efra yfirborðinu til að sýna vel einstaka uppbyggingu þeirra og lit og koma í veg fyrir alla endurspeglun.
Hjá Oyster Perpetual 28 úr 18 kt gulli með green stone lakkskífu eru þessi þrjú klukkustundamerki úr blóðsteini sem hefur margvísleg græn litbrigði. Hjá Oyster Perpetual 34 úr 18 kt Everose gulli með blue stone lakkskífu eru klukkustundamerkin úr dumortíeríti, sem er steinn sem einkennist af ljósbláum og dökkbláum svæðum til skiptis.

Oyster keðja
Táknræn og sterkbyggð
Nýju útgáfurnar af Oyster Perpetual 28 og Oyster Perpetual 34 eru með Oyster keðju. Þessi keðja með hlekki í þremur hlutum var hönnuð seint á 4. áratug síðustu aldar og er þekkt fyrir styrkleika sinn. Hjá þessum úrum er hún með Oysterclasp sem leggst saman ásamt Easylink-stækkunarhlekk sem merkið hannaði og gerir notandanum kleift að stilla lengd keðjunnar auðveldlega um u.þ.b. 5 mm.

Verkgerð 2232
Öflug tækni
Oyster Perpetual 28 og Oyster Perpetual 34 eru með verkgerð 2232, sem er úrverk hannað og framleitt eingöngu af Rolex. Þetta sjálftrekkandi, vélræna gangverk býður upp á framúrskarandi afköst, sérstaklega hvað varðar nákvæmni, sjálfvirkni, þægindi og áreiðanleika. Gangverkið 2232 er með Syloxi-spíralfjöður og meðseglandi ganghjól úr nikkelfosfórblöndu. Það er með hleðsluforða upp á u.þ.b. 55 klukkustundir.


Superlative Chronometer
vottun
Oyster Perpetual 28 og Oyster Perpetual 34 eru með Superlative Chronometer vottun. Hvert og eitt úr sem er sent frá verkstæðum Rolex fær þessa einstöku vottun sem staðfestir framúrskarandi virkni þeirra á úlnliðnum. Þessi vottun er undir ströngu eftirliti óháðra svissneskra aðila sem eru viðurkenndir á heimsvísu.
Árið 2026 hefur Superlative Chronometer vottunin verið styrkt enn frekar með þremur nýjum prófum: þol gegn segulsviðum, áreiðanleiki og þægindi. Þessi skilyrði eru notuð í gegnum öll hönnunar- og framleiðsluskref úranna. Hundruð athugana og staðfestinga eru framkvæmd í þessum skrefum til að prófa frammistöðu úrsins. Þau eru viðbót við skilyrðin sem voru sett fram þegar vottunin var endurskilgreind árið 2015 og stýra nákvæmni, vatnsþéttni, sjálftrekkingu og hleðsluforða. Það árið setti Rolex saman sérstakt verklag til að prófa fullsmíðuð úr, sem var framkvæmt inni í manufacture verksmiðjunni með sjálfvirkum búnaði. Kröfurnar um nákvæmni eru sérstaklega strangar: þær eru mældar eftir að gangverkið hefur verið sett í kassann og nákvæmni úrsins má ekki skeika um meira en á milli -2 og + 2 sekúndur á dag. Hámarksfrávikin sem Rolex samþykkir fyrir nákvæmni fullsmíðaðs úrs eru töluvert þrengri en samþykktu frávirkin fyrir opinbera vottun gangverksins.
Superlative Chronometer vottunin er sýnd með græna innsiglinu sem fylgir öllum Rolex úrum og henni fylgir fimm ára ábyrgð.




