

Ný úr árið 2026
Yacht-Master II frá Rolex
Kapphlaupið við tímann sigrað
Rolex kynnir nýjustu kynslóðina af Oyster Perpetual Yacht-Master II. Nýja útgáfan af þessu einstaka regatta úri með skeiðklukku fæst í Oystersteel eða 18 kt gulli og er með algjörlega endurhannað útlit og gangverk.
Útlitið á aðgerðunum og virkni niðurtalningarinnar hafa verið endurhönnuð til að gera þau læsilegri og auðveldari í notkun. Niðurtalningin birtist núna á kraga á skífunni og aðgerðin er forrituð og notuð eingöngu með tveimur hnöppum á hliðinni. Siglingaútlit úrsins kemur skýrt fram í gegnum margvísleg smáatriði sem skipa sér sett í Yacht-Master vörulínunni. Nýja Yacht-Master II vekur jafn mikla hrifningu og upprunalega módelið þegar það kom fyrst á markaðinn.

Skífa og skáhallandi kragi.
Einstaklega góður læsileiki
Skífan hefur verið hönnuð til að gera allar aðgerðirnar auðlæsilegar. Skífan er húðuð með nýju hvítu lakki sem er matt til að draga úr endurspeglun og á henni eru applique klukkustundamerkin sem eru táknræn fyrir úrin í Professional-línunni. Skáhallandi kragi, ætlaður fyrir niðurtalninguna, er staðsettur á skífuna af einstakri nákvæmni og er með skráða umsókn um einkaleyfi. Hann er merktur frá 10 til 0 mínútur, með hálfar mínútur merktar með þríhyrningum.

Cerachrom hringinnlegg
Samansafn hátækni
Yacht-Master II fæst í Oystersteel eða 18 kt gulli og er með snúningshring í báðar áttir og Cerachrom innlegg með 60 mínútna kvörðun úr bláu keramik. Hátækni keramikið sem Rolex notar er einstaklega hart og svo gott sem rispuhelt og nota þarf sérstök verkfæri til að vinna það. Liturinn á því er stöðugur og upplitast ekki í útfjólubláu ljósi. Þetta keramik er óvirkt og getur ekki tærst, þökk sé efnafræðilegri samsetningu þess.
Mótaða, innfellda kvörðunin og tölustafirnir á bláa Cerachrom innlegginu eru húðaðir platínu eða gulli með PVD (eðlisfræðilegri eimhúðun). Hver mínúta er merkt í fyrsta hálftíma kvörðunarinnar. Þegar hringurinn er í hlutlausri stöðu er hægt að lesa síðustu 30 sekúndur niðurtalningarinnar nákvæmar með sekúnduvísi skeiðklukkunnar í miðjunni. Hringurinn með kvörðun er með rifflaða brún sem veitir frábært grip og gerir notandanum einnig kleift að mæla tímalotur auðveldlega, til dæmis siglingatímann á milli tveggja bauja.

Oyster keðja
Táknræn og sterkbyggð
Yacht-Master II er með Oyster keðju. Þessi málmkeðja var hönnuð seint á 4. áratug síðustu aldar, með breiða og dálítið sveigða hlekki, og er þekkt fyrir að vera sterkbyggð. Oyster keðjan hjá Yacht-Master II úr Oystersteel eða 18 kt gulli er með grennri Oysterlock öryggislás sem leggst saman. Þessi lás sem leggst saman kemur í veg fyrir að keðjan opnist óviljandi og er einnig með Easylink-stækkunarhlekk til að notandinn geti stillt lengd keðjunnar auðveldlega um u.þ.b. 5 mm. Hjá úrinu úr 18 kt gulli er Oyster keðjan með einkaleyfisskráð keramikinnlegg hönnuð af merkinu inni í hlekkjunum til að koma í veg fyrir slit og gera keðjuna þjálli á úlnliðnum.

Verkgerð 4162
Nýstárlegt augnablik
Verkgerð 4162 kom út árið 2026 og er eingöngu notuð í Yacht-Master II. Þetta gangverk er með skeiðklukku og niðurtalningu og er þróað og framleitt eingöngu af Rolex. Nýja kynslóð Yacht-Master II er með verkgerð 4162, sem er þróun út frá verkgerð 4161 sem var notuð í forvera þessa módels. Þetta sjálftrekkandi, vélræna gangverk býður upp á framúrskarandi afköst, sérstaklega hvað varðar nákvæmni, hleðsluforða, þægindi og áreiðanleika.
Niðurtalningin er virkjuð með sterkbyggðum vélbúnaði með súluhjóli og lóðréttu tengsli, sem gerir kleift að byrja strax að mæla tímann af mikilli nákvæmni. Verkgerð 4162 er einnig með nokkrar mikilvægar nýjungar sem Rolex hefur tekið í notkun í gangverkin sín, þar á meðal Chronergy akkerið. Þökk sé lögun tunnunnar framúrskarandi virkni deiliverksins endist hleðsluforði gangverksins í um það bil 72 klukkustundir. Verkgerð 4162 er fallega frágengið með brúm sem eru skreyttar með Rolex Côtes de Genève og útskorið sjálfvindulóð.


Superlative Chronometer
vottun
Oyster Perpetual Yacht-Master II er með Superlative Chronometer vottun. Hvert og eitt úr sem er sent frá verkstæðum Rolex fær þessa einstöku vottun sem staðfestir framúrskarandi virkni þeirra á úlnliðnum. Þessi vottun er undir ströngu eftirliti óháðra svissneskra aðila sem eru viðurkenndir á heimsvísu.
Árið 2026 hefur Superlative Chronometer vottunin verið styrkt enn frekar með þremur nýjum prófum: þol gegn segulsviðum, áreiðanleiki og þægindi. Þessi skilyrði eru notuð í gegnum öll hönnunar- og framleiðsluskref úranna. Hundruð athugana og staðfestinga eru framkvæmd í þessum skrefum til að prófa frammistöðu úrsins. Þau eru viðbót við skilyrðin sem voru sett fram þegar vottunin var endurskilgreind árið 2015 og stýra nákvæmni, vatnsþéttni, sjálftrekkingu og hleðsluforða. Það árið setti Rolex saman sérstakt verklag til að prófa fullsmíðuð úr, sem var framkvæmt inni í manufacture verksmiðjunni með sjálfvirkum búnaði. Kröfurnar um nákvæmni eru sérstaklega strangar: þær eru mældar eftir að gangverkið hefur verið sett í kassann og nákvæmni úrsins má ekki skeika um meira en á milli -2 og + 2 sekúndur á dag. Hámarksfrávikin sem Rolex samþykkir fyrir nákvæmni fullsmíðaðs úrs eru töluvert þrengri en samþykktu frávirkin fyrir opinbera vottun gangverksins.
Superlative Chronometer vottunin er sýnd með græna innsiglinu sem fylgir öllum Rolex úrum og henni fylgir fimm ára ábyrgð.




