Ókeypis heimsending.

Stundaglas, bréf 10

Velkomin í Stundaglasið, vikulega uppfærslu frá okkur í Michelsen 1909 um allt það helsta sem gerðist í síðastliðinni viku í úrabransanum. Þessar uppfærslur hjá okkur munu snúast að öllu því nýja sem að merkin eru að gefa frá sér og því helsta sem snýr að landslagi bransans.

Það er komið að fyrsta stóra áfanga Stundaglassins þar sem við erum hér að gefa út 10. bréf okkar. Í þessum merka áfanga ræðum við nýtt úr frá Longines sem hefur farið undir radarinn, Omega gaf út ný úr og forstjóri Richemont ræðir um stöðu úra í Kína.

Longines

Byrjum á elsta framleiðanda sem við höfum í verslun okkar, sem gefur út nýtt kafaraúr í Legend Diver-línu sinni. Longines hefur gert það að hefð síðastliðin tvö ár að gefa út Legend Diver til að fagna sumrinu. Í fyrra sumar gáfu þeir út þrjá nýja liti: grænan, gráan og terrakotta.

Í þetta sinn hafa þeir gefið út mjallhvíta skífu og ég, sem mikill talsmaður hvítra skífa, fagna því mjög hvað margir framleiðendur hafa tekið skref út í þennan lit, frá Breitling til Tudor og ROLEX. Ég er ekki langt frá því að segja að þetta Longines úr sé efst á þessum lista.

Omega

Á meðan flestir dýrka Speedmaster og Seamaster-línurnar, þá hefur Railmaster línan alltaf heillað mig hvað mest. Í 38mm þá eru þessi tvö splunkunýju Railmaster úr virkilega sjarmerandi, úrin koma með grárri og ljósbrúnni skífu og er þetta virkilega velkominn útfærsla frá Omega.

Yema

Yema sýnir hér fágaðri tón en oft áður en þessi einstaki, franski framleiðandi sem hefur náð fótfestu á sportúra markaðinum tekur nú stökk í formlegu úrin með nýju Granvelle CMM.20-línu sinni sem inniheldur micro-rótor gangverk.

Richemont

Forstjóri Richemont, Johann Rupert, hefur hrósað öðrum framleiðendum fyrir að hafa fylgt hans fordæmi um að minnka framleiðslu lúxusúra til að svara minni eftirspurn frá Kína. Asíu-Kyrrahafssmarkaðurinn (APAC) hefur farið hratt kólnandi og er það áhyggjuefni fyrir Richemont þar sem 44% af heildar úrasölu fyrirtækisins kom þaðan í fyrra með Kína fremst í flokki. Richemont á merki á borð við Cartier, IWC og Panerai. Á jákvæðari nótum frá asíska úramarkaðinum, þá var salan hjá Vacheron Constantin og A. Lange & Söhne meiri en gert var ráð fyrir.

Zenith

Zenith hefur gefið út nýjan Chronomaster með þreföldu dagatali. Það er svo sem ekki frásögur færandi, en það sem gerir þetta úr merkilegt er skífan sem er úr náttúrusteininum Lapiz Lazuli.

MB&F

MB&F hefur gefið út formlegt úr sem er það minnsta og það þynnsta sem framleiðandinn hefur nokkurn tíman gert. Formlegt úr hefur hins vegar aðeins aðra þýðingu þegar það kemur að MB&F úrum líkt og sést hér til hliðar.

IWC

Við ræddum Richemont áðan og nú ræðum við um eitt stærsta merkið innan þeirra grúppu. Þeir hafa spennt vöðvana þegar það kemur að nýju Big Pilot úri þar sem úrkassinn er úr bláu keramiki. Úrið inniheldur einnig marga spennandi eiginleika, eins og hlaupárs-dagatal (e. perpetual calendar) sem reiknar hversu margir dagar eru í mánuði og þarf því aðeins að stilla dagsetninguna á fjögurra ára fresti. Úrið hefur einnig tourbillon sem hjálpar með að stilla gangnákvæmni úrsins á móti þyngdarafli jarðar.

Hér með líkur þessum fyrsta stóráfanga Stundaglassins er við lokum 10. bréfi þess. Við fórum um víðan völl þar sem mörg úranna sem komu fram í bréfi vikunnar eru með nýjum eiginleikum fyrir merkin, formleg úr létu einnig ljós sitt skína frá Yema og MB&F. Ef þú, kæri lesandi, ert ekki kominn með nóg af formlegum úrum og vilt lesa meira um þau þá gerðum við grein um okkar 5 uppáhalds formlegu úr.

Takk kærlega fyrir lesturinn og hlakka ég til að kynna allt það nýjasta í 11. bréfi, næsta föstudag.