gucci-logo

Gucci var stofnað árið 1921 í Flórens, Ítalíu og hefur frá upphafi verið eins ítalskt og mögulegt er í hönnun sinni. Mótíf og merki Gucci eru einhver þau þekktustu í heiminum og einkennir einstök hönnun og gæði Gucci.

Hvers vegna Gucci?

Magnús D. Michelsen
sölustjóri Michelsen svarar

Gucci er eitt stærsta tískuhús heimsins og af góðri ástæðu. Fyrirtækið er 100 ára og varð fyrir löngu þekkt táknmynd hins ítalska „Dolce Vita“ – góða lífsins.

Hönnun úranna og skartsins er allt frá því að vera alveg æpandi áberandi, alsett demöntum eða í einkennislitum fyrirtækisins, græna og rauða litnum, yfir í alveg stílhreint útlit og extra þunn spariúr. Gucci notar einungis 18kt gull í alla sína gullskartgripi, en á Íslandi er almennt notað 14kt gull.

Úrin eru hönnuð og framleidd af Gucci í Sviss. Hér færðu svissneska framleiðslu, og allt sem hún stendur fyrir; nákvæmni, safírgler, verulega vönduð úrverk og nýsköpun.

Gucci hjá Michelsen

Gucci gerir gríðarlegar kröfur til endursöluaðila sinna. Aðeins einn aðili uppfyllir kröfur þeirra á Íslandi fyrir úr og skartgripi og fögnum við því að geta boðið upp á Gucci vörur hérlendis.

Michelsen og Gucci eiga það sameiginlegt að vilja vera best í sínum geira og bjóða aðeins það fallegasta og vandaðasta. Verið velkomin í Michelsen 1909 að skoða Gucci.

Þú færð Gucci hjá Michelsen 1909 og á michelsen.is.