Ókeypis heimsending.

Stundaglasið, bréf 13

Velkomin í Stundaglasið, vikulega uppfærslu frá okkur í Michelsen 1909 um allt það helsta frá síðastliðinni viku í úrabransanum.

Í þessari viku höfum við einstaklega þéttan pakka: Breitling endurhannaði heila línu hjá sér og bættu við nýjum stærðum, Seiko – líkt og svo oft áður – kom með nýjungar , Tudor hefur loksins gefið út nýtt úr í Black Bay 54 kafaralínu sinni og, merkast af þessu öllu, við fáum að heyra framkvæmdarstjóra Michelsen 1909, Róber F. Michelsen, ræða um endurvakningu Urban Jürgensen.

Breitling

Byrjum þetta á Breitling, sem hafa gert miklar og að mínu mati mjög velkomnar breytingar á SuperOcean Heritage-línu þeirra. Þegar Heritage línan kom fyrst út árið 2007 fangaði hún mjög vel anda upprunalegu SuperOccean úranna frá 1957. Tíu árum seinna, 2017, endurhönnuðu Breitling línuna aftur og uppfærðu hlutföllin og aðallega gæði gangverksins. Núna kom önnur uppfærsla og er hún sú stærsta til þessa.

Þriggja vísa úrin innihalda nú glænýtt B31-gangverk Breitling, sem tekur við af B20 gangverkinu. Stærðir kassans fara úr því að vera í 42, 44 og 46mm yfir í stærðir 40, 42 og 44mm stærst. Glerhringurinn er uppfærður, þar sem hann er nú nær þeim sem finnast á SuperOcean-úrunum. Við höfum fengið þrjú af þessum úrum í búðina og hvet ég ykkur að koma og skoða, þar sem ég er mjög stór aðdáandi þessarra breytinga.

Skeiðklukkuhluti línunnar hefur einnig fengið uppfærslu, sem er gott að heyra, þar sem jafn söguleg skeiðklukka og þessi á skilið uppfærslu. Fyrsta skeiðklukku-kafaraúrið var SuperOcean og nú hafa þeir sett besta gangverk sem þeir eiga, B01, í nýju SuperOcean-skeiðklukkururnar. Einnig eru þau minni en áður, núna í 42mm.

Fyrir dömurnar, þá er loksins eitthvað að finna fyrir þær í nýja SuperOcean-línunni. Í fyrsta skipti á þessari öld þá hafa þeir gert SuperOcean Heritage-línuna í 36mm, sem er fullkomin stærð fyrir konur sem vilja örlítið gróft og sportlegt úr. Úrin koma í nokkrum litum en skemmtilegastur af þeim öllum er pistasíugræni tóninn. Ég er allavega mikill aðdáandi og get ekki beðið eftir að sjá það í persónu.

Seiko

Seiko eru mjög dugleg í útgáfu nýrra úra og sýnir það sig þessa vikuna þar sem við höfum fengið fjögur ný úr: 3 kafaraúr og eitt einstaklega fallegt formlegt úr. Byrjum á grænu kafaraúrunum sem voru að líta dagsins ljós; annað þeirra er partur af vinsælu Samurai-línu þeirra og er skífan, líkt og Seiko kunna best, algjörlega geggjuð. Hitt úrið fylgir sígilda kafarastíl Seiko þar sem það er í 1965 Revival úrkassanum sem hefur hlotið mikið lof. Úrið er einnig merkt PADI samtökunum, sem er leiðandi félag köfunarakennara og sameinar kafara um allan heim í ástríðu á hafinu. Úrin eru væntanleg í verslun okkar í næsta mánuði, en hægt er að forpanta þau hér á síðunni.

Það var hins vegar ekki bara eitt Samurai úr sem kom út, Seiko gáfu Samurai út í bláu líka, sem er mjög töff að mínu mati. Samurai-línan fagnaði 20 ára afmæli í fyrra og miðað við vinsældir hennar síðustu ár, þá er virkilega gott að sjá að Seiko hefur tekið þá ákvörðun að næra þá eftirspurn.

Ekki allt má vera kafaraúr, innan Classic Craftmanship-hliðar Presage-línunnar hefur bæst í hópinn einstaklega fágað úr með virkilega fallegri, dökkri skífu. Skífan er úr Urushi-lakki sem gefur henni virkilega djúpan dökkan tón. Urushi er náttúrulegt lakk sem kemur úr trjákvoðu japanska „lakk-trésins“. Lakkið er borið á skífuna af japönskum handverksmeisturum og handslípað margoft til að ná fram þessari dýpt og silkimjúka lit.

Tudor

Tudor hafa gefið út úr sem nákvæmlega enginn bjóst við eða bað um. Á móti er ekki ein einasta manneskja mótfallinn þessu úri heldur. Loksins eru Tudor farnir að bæta við Black Bay 54-línuna og þar með dömuúrvalið hjá sér sem fer sístækkandi. Úrið er skemmtilegt í útliti, þar sem ljósbláa skífan er með einstakri sandáferð. Liturinn nefnist Lagoon Blue, sem við Íslendingarnir þekkjum að sjálfsögðu úr Bláa lóninu.

Urban Jürgensen

Það bárust miklar gleðifréttir til úraáhugafólks í síðustu viku þar sem eitt merkasta merki sögunar er að verða endurvakið. Urban Jürgensen er merkið og stofnandi þess, Jörgen Jürgenssen, var einn merkasti úrsmiður síns tíma. Má setja hann á sama stall og menn á borð við Abraham Luis Breguet og Jean Marc Vacheron sem eru stofnendur Breguet og Vacheron Constantin. Saga Urban Jürgensen er löng og má segja að stofnun þess sé árið 1773 þegar hann gerir meistaraverkefnið sitt: hann framleiðir úr með öðrum manni, Isaac Larpent, en saman mynda þeir Larpent Jürgensen. Þekktasti Jürgensen fjölskyldumeðlimurinn er elsti sonur Jörgen Jürgensen, maðurinn sem gaf meira en bara vinnu sína til merkisins heldur heitir það einnig í höfuð á honum. Urban Jürgensen er án efa besti úrsmiður Danmerkur frá upphafi.

Við höfum fengið Róbert F. Michelsen, úrsmið og framkvæmdarstjóra Michelsen 1909, til að segja okkur frá merkinu, enda hefur hann mikil tengsl við Urban Jürgensen, þar sem hann starfaði sem yfirúrsmiður frá 2015-2018.

„Þó að ég sé leiður yfir því að mitt gamla fyrirtæki hafi farið illa út úr Covid-faraldrinum sem reyndist mörgum minni fyrirtækjum erfitt, þá er ég hæstánægður að Kari Voutilainen og hans teymi hafi endurvakið þetta gamalgróna og einstaka merki á jafn áhrifaríkan hátt og raun ber vitni. Kari tengist Urban Jürgensen en hann vann fyrir fyrirtækið fyrir 20 árum síðan og það veitti honum innblástur þegar hann svo stofnaði sitt eigið úrafyrirtæki síðar meir og ber hönnun úra hans hans þess merki. Urban Jürgensen á skilið að vera nefnt í sömu andrá og heimsþekkt merki sem eru af mörgum úrasérfræðingum talin með þeim betri, s.s. Breguet, Patek Philippe og A. Lange & Söhne og ég vona að með tilkomu Kari Voutilainen að hróður, orðspor og þekking manna á Urban Jürgensen loksins aukist.“

Hér með líkur þrettánda bréfi Stundaglassins, merkin okkar voru í forgangi þessa vikuna þar sem stórtíðindi komu úr þeirra herbúðum, alltaf gaman að fá að heyra aðrar raddir í þessum greinum og þakka ég þá sérstaklega Róberti fyrir að hafa rætt sinn tíma hjá Urban Jürgensen. Ég vil minna á grein vikunnar sem kom út á miðvikudaginn og fjallar um sögu Seiko.

Takk kærlega fyrir lesturinn og ég hlakka til að kynna fyrir ykkur allt það nýjasta í bréfi fjórtán af Stundaglasinu næsta föstudag.