Prospex vísar í „pro-specs“ og er lína sem stendur undir nafni þegar kemur að köfun, hraða og könnun. Prospex eru praktísk og áreiðanleg, hvort sem það er í vatni, lofti eða á landi.
Seiko Prospex Speedtimer ‘Seiko 145th Anniversary’ – Limited Edition
kr.464.000
Á lager
Vörulýsing
Limited Edition – framleitt í aðeins 700 eintökum
Þetta úr er framleitt í mjög takmörkuðu upplagi til að fagna 145 ára afmæli Seiko, upphaflega sem sem úra- og klukkuverkstæði í Tókýó árið 1881. Það sækir innblástur í sögu Seiko og færir hana til nútímans með nýjustu tækni- og hönnunarnýjungum.
Seiko Speedtimer var stór áfangi í nýsköpun árið 1969 sem fyrsta sjálfvirka skeiðklukkuúrið í heiminum með „column wheel“ og „vertical clutch“, sem enn þann dag í dag er notað í öllum vönduðustu skeiðklukkuúrum heims.
Hönnunin er innblásin af sígildri týpu úr sögu Seiko: Seiko „Panda“ frá 1972. Undir tvíkúptu safírgleri er klassísk, silfurhvít skífa með glæsilegum gylltum tónum og ólíkum áferðum til að auka læsileika. Mynstrið á skífunni er tilvísun í upprunalegu japönsku vasaúrin frá síðasta áratug 19. aldar, þegar Seiko fór úr því að gera við klukkur og úr yfir í að smíða þau.
Úrið er knúið áfram af 8R48, sjálftrekktu mekanísku skeiðklukkuverki, sem er hannað og smíðað innanhúss af Seiko. Úrkassann einkenna mjúkar línur og glæsileg keðjan tryggir að úrið sitji vel á úlnliðnum.
Úrkassi: 42mm – stál
Úrverk: Sjálftrekkt – 8R48 – skeiðklukka
Vatnsvörn: 100M
Skífa: Silfurlituð – vísar
Gler: Rispufrítt safírgler
Keðja: Stál – öryggislás
Ábyrgð: Þriggja ára
Meiri upplýsingar
| Skífulitur | |
|---|---|
| Efni | |
| Stærð | |
| Eiginleikar | |
| Úrverk | |
| Steinar | |
| Litur steina | |
| Demantastærð | |
| Box og pappír | |
| Árgerð | |
| Vöruflokkar | |
| Vatnshelt | |
| Kyn | |
| Ól / Keðja |





