michelsen-logo

Michelsen var stofnað árið 1909 á Sauðárkróki, af J. Fr. Michelsen. Úraframleiðsla hefur fylgt fyrirtækinu í áratugi en hún lagðist af í kringum Seinni heimsstyrjöldina. Árið 2009, á 100 ára afmæli Michelsen, var úraframleiðslan endurvakin. Fjórða kynslóð Michelsen úrsmiða sér um hönnun og framleiðslu úranna.

Hvers vegna Michelsen?

Magnús D. Michelsen
sölustjóri Michelsen svarar

Við feðgarnir fórum af stað með Michelsen úrin aftur hreinlega því okkur langaði það. Það hefur verið viðhorfið hjá okkur frá upphafi, að framleiða bara úr sem við erum stoltir af. Þetta er gæluverkefni sem við sinnum af ástríðu og erum svo heppnir að fólk vill greinilega eiga Michelsen úr.

Við kappkostum við að hafa úrin falleg og vönduð. Úrverkin spanna alveg frá quartz-rafhlöðu upp í mikið handunnin handtrekkt úrverk, þar sem úrsmiðurinn okkar Róbert F. Michelsen lagði tugi klukkustunda í hvert úverk.

Michelsen úrin eru fjölbreytt og fyrir bæði konur og karla. Það er því eitthvað við allra hæfi.

Michelsen úrin

Michelsen úrin eru frábær fyrir þau sem vilja eiga eitthvað sem allir hinir eiga ekki. Hvert einasta Michelsen úr er sérstaklega prófað; það fer í gegnum strangt gæðastjórnunarferli, framkvæmt af úrsmiðunum okkar, Michelsen feðgunum, og þarf að uppfylla strangar kröfur þeirra, allt til að mæta væntingum þínum. Hjá okkur er ástríða fyrir úrum og úrsmíði í fyrsta sæti, sem er auðséð í persónulegum úrum okkar.

Þú færð Michelsen úrin hjá Michelsen 1909, Michelsen Kringlunni og á michelsen.is.