Verið velkominn í 9. bréf Stundaglassins þar sem létt er yfir okkur og sumarið hefur loksins látið sjá sig eftir langþráða bið. Þetta Stundaglas verður á léttari nótunum þessa vikuna og hvetjum við sem flesta að hefja lestur sinn úti í sólinni á meðan hún heiðrar okkur með nærveru sinni.
Í bréfinu að sinni munum við vera fara mikið yfir verklega framandi úr frá mörgum flottum framleiðendum. Vacheron Constantin gefa út nýtt úr í þekktustu línu sinni, Bvlgari kemur með nýtt ‘Eight Days’ úr í Octo Finissimo-fjölskyldunni og uppáhalds merki allra úrasafnara, Hublot, gaf út ný MP-10 úr með tourbillon.
Viðskiptafréttir
Við byrjum bréfið á jákvæðum nótum að sinni þar sem viðræður milli Sviss og Bandaríkjanna um hugsanlega tollalækkun á úrum tekur skref í rétta átt, en Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði að viðræður við Sviss færu fremst í röðina þegar það kemur að tollalækkunum.
Vacheron Constantin
Merki sem finnst fátt skemmtilegra en að gera flókin úr gaf út nýtt úr í sívinsælu Overseas-línu þeirra. Úrið er „Grand Complication“ og það fyrsta innan Overseas-línunnar til að innihalda hringiverk (e. minute repeater). Verkið virkar þannig að það gefur frá sér hljóðmerki (mekanískt að sjálfsögðu) sem segir hvað klukkan er.
Bvlgari
Bvlgari er merki sem dýrkar þunn úr og Octo Finissimo úra fjölskyldan fremst í þeim flokki, með fjölda heimsmeta yfir þynnstu úr í heimi. Þrátt fyrir það er þetta Octo Finissimo ekki heimsmethafi, en er með átta daga hleðsluforða og var framleitt í takmörkuðu upplagi fyrir Gübelin, svissneskan skartgripaframleiðanda og verslun.
Hublot
Hublot hefur gefið út tvö ný úr í MP-10-línu þeirra og eru þau sérkennileg í útliti. Þau eru bæði með tourbillon og efnið sem er notað í úrkassann er svipað skemmtilegt og úrið sjálft, þar sem annar úrkassinn er úr svörtu keramiki og hinn er úr safírgleri.
Hér með líkur þessu Stundaglasi vikunnar. Við fórum um víðan völl af merkjum sem ekki er hægt að finna hérlendis en ég bendi á nýjustu grein okkar um sögu TAG Heuer Carrera þar sem farið er yfir virkilega áhugaverða sögu einnar merkustu úralínu sem finnst hérlendis.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur aftur næsta föstudag þar sem við förum í 10. bréf Stundaglassins.