Sögugreinar eru í miklu uppáhaldi hjá okkur í Michelsen, þar sem við elskum að líta aftur á liðna tíð og sjá hvað það var sem myndaði það landslag sem við störfum við í dag. TAG Heuer hefur mikil áhrif úraiðnaðinn, þar sem margir nýjungar hafa verið leiddar af þessum sögulega framleiðanda.
TAG Heuer er framleiðandi sem hefur verið virkilega vinsæll hér á landi og merkið bíður frábæran upphafspunkt fyrir þá sem eru að byrja úraferðalag sitt. Upphaf TAG Heuer, sem upphaflega hét bara Heuer, á sér stað árið 1860 þar sem fyrsta kynslóð fjölskyldufyrirtækisins byggði það upp á tveimur grunngildum: traustri fjölskyldustjórnun og tækninýsköpun.
Saga Carrera línunnar byrjar ekki fyrr en rúmum 100 árum síðar, árið 1963. Jack Heuer, þriðja og síðasta kynslóð Heuer fjölskyldunnar til að leiða merkið áfram, er ekki bara síðasti fjölskyldumeðlimurinn til að stjórna merkinu, heldur er hann einnig sá þekktasti. Nafnið Carrera kemur frá árinu 1950, þar sem í fimm ár var haldinn kappakstur í Mexíkó sem bar heitið Carrera Panamericana og keppendur keyrðu þvert á milli landamæra Mexíkó.
Árið 1954 þurftu ökumenn að keyra yfir 3.500 kílómetra í keppninni og var meðalhraðinn um 222 kílómetrar á klukkustund. Þegar þú bætir við fjölda dauðsfalla í keppninni og takmörkuðum öryggisráðstöfunum sem þá voru til staðar, var kappaksturinn fljótur að vinna sér inn það orðspor að vera sennilega sá hættulegasti í heimi.
Þegar Jack Heuer tekur við Heuer árið 1962, átti merkið þá þegar langa sögu og mikla virðingu þegar kom að tímamælum í tímatöku, mælaborðsklukkum í bílum og í stöðugt meira magni, skeiðklukkuúrum á úlnlið. Þetta orð, Carrera, festist í huga Jacks og þegar hann tekur við stjórnartaumunum er hann fljótur að grípa til aðgerða.
Ári eftir að Jack tekur við taumunum gefur hann út fyrsta Carrera úrið, sem var hannað og framleitt fyrir ökuþóra. Úrið þætti lítið nú til dags, þar sem það var aðeins 36mm að stærð, en það var venjan á þessum tíma. Úrið var hannað svo auðvelt væri að lesa á það í flýti og að skeiðklukkan væri einstaklega einföld í notkun, en Carrera-línan treysti fyrstu árin á handtrekkt gangverk sem komu frá verkframleiðandanum Valjoux.
Árið 1969, í samstarfi við Breitling, Hamilton, Buren og Dubois-Depraz, gaf Heuer út fyrstu sjálftrekktu skeiðklukkuna. Til að fagna þessu nýja gangverki, sem bar heitið Caliber 11, gaf Heuer út nýtt úr, Monaco, sem er í dag eitt auþekkjanlegasta og frægasta úr heims. Við höfum nú þegar farið yfir sögu þeirrar Monaco og má lesa um hana hér. Monaco var ekki eina úrið sem fékk þetta nýja byltingarkennda gangverk, heldur var það líka sett í Carrera-úrin.
Heuer var framleiðandi sem sérhæfði sig í mekanískum skeiðklukkuúrum, sem voru og eru almennt dýrari en þriggja vísa mekanísk gangverk. Þegar quartz-krísan skellur á, eru áhrifin því harkaleg fyrir Heuer og verri en fyrir marga aðra framleiðendur. Árið 1982 neyðist Jack Heuer til að selja fyrirtækið vegna bágrar stöðu þess. Þetta merkti ekki aðeins enda Heuer sem fjölskyldufyrirtækis, heldur líka enda tíma Jacks Heuer sem leiðtoga fyrirtækisins. Árið 1984 var Carrera-línan sett á ís þar sem hún mundi liggja í tólf ár. Techniques d‘Avant Garde, einnig þekkt sem TAG, kaupir Heuer-félagið árið 1985 og breytir nafni Heuer í TAG Heuer, sem það gengur ennþá undir.
Árið 1996 er Carrera-línan endurvakin og fyrsta nýja úrið sækir innblástur í fyrsta úrið sem bar heitið Carrera á skífunni. Það úr var skeiðklukka sem hélt þar með í kappaksturshefðina sem einkenndi Heuer á árunum áður og einkennir TAG Heuer í nútímanum.
Í dag er úrið tengdara kappakstri en það hefur nokkurn tímann verið áður: TAG Heuer eru opinberir tímatökuaðilar fyrir Formula 1 kappaksturinn og í samstarfi við keppnislið Red Bull Racing í F1. Carrera-línan hefur einnig fengið margar nýjar uppfærslur, eins og hina geysivinsælu Glassbox-útfærslu sem var kynnt árið 2023.
Sömuleiðis er TAG Heuer í samstarfi við Porsche og gáfu þeir einstök Carrera Glassbox-úr sem nefnast Chronosprint. Þau sýna hæfni TAG Heuer þegar það kemur að gangverkum, þar sem virkni skeiðklukkunnar er einstök. Sekúnduvísir skeiðklukkunnar gengur hratt í 9,1 sekúndu, eða sem nemur frá 12 til 4 á skífunni, til að sýna hröðun fyrsta Porsche 911-bílsins, sem var 9,1 sekúndur að ná 0 – 100 km hraða. Svo er skífan full af tilvísunum til eldri Porsche Carrera-bíla.
Nýjasta uppfærslan á Carrera-línunni átti sér stað á Watches and Wonders hátíðinni árið 2025, uppfærslan kom í formi nýrra Day-Date og GMT-úra sem eru með nýjan úrkassa og nýja keðju. Keðjan er áhugaverð vegna þess að hver sem er getur stytt hana, hvar sem er – án neinna tóla. Úrin koma einnig í nýjum litum og höfum við til að mynda fengið bláu útgáfuna í verslun okkar á Hafnartorgi.
Carrera-línan er söguleg, ekki bara fyrir TAG Heuer, heldur einnig fyrir úraheiminn í heild. Carrera þykir toppurinn af allri framleiðslu TAG Heuer og er þeirra stöðugasta lína. Hönnun úrana er sígild en á sama tíma nútímaleg, verklega eru þau frábær og TAG Heuer nýtir oft Carrera til að kynna nýjungar, líkt og með nýju byltingarkenndu keðjuna sem nýju 2025 Carrera úrin fengu. Hér má sjá öll TAG Heuer Carrera sem fáanleg eru hjá Michelsen.