Ókeypis heimsending.

Mín topp 5 formleg úr

Ég hef alltaf gaman af því að fá að gefa mínar skoðanir á hlutunum, eins og sjá má á fyrri topplistum mínum um skeiðklukku- og GMT-úr. Formleg úr er flokkurinn sem ég hef hvað sterkastar skoðanir á. Vel undir 5% þeirra sem kaupa kafaraúr að fara með það í köfun og nota það í sínu náttúrulega umhverfi. Sömuleiðis eru fáir sem nota skeiðklukkur til að mæla hraða á meðan verið er að keyra. GMT-úr hafa þó mikið notagildi, sérstaklega ef maður á fjölskyldu sem býr erlendis eða ferðast reglulega af skerinu.

Formleg, eða spariúr, úr er einn af þeim fáu úraflokkum í dag sem geta enn verið notuð í sínu náttúrulega umhverfi. Þó að fatastíll nútímans hafi stokkið frá tímalausum jakkafötum og klæðnaði sem er þess eðlis, þá verður hver og einn samt að geta klætt sig upp í sitt fínasta púss og verður úrið að spegla það.

Það er fátt sem getur skemmt jakkaföt eða flottan jakka og skyrtu meira en rangt úr. Að nota snjallúr með fínum og formlegum fötum er eitthvað sem gríðarlegur fjöldi gerir og það í öllum þrepum atvinnulífsins, frá hefðbundinni manneskju sem þarf örsjaldan að klæða sig upp í sítt fínasta og yfir í seðlabankastjóra sem klæðist jakkafötum daglega (með snjallúr á úlnliðnum).

Það er ekki flókið að klæða úlnliðinn upp á formlegan hátt: það eina sem að þarf er úr á leðuról með fágaðan úrkassa og (helst) einfalda skífu. Mikilvægt er að úrið sé ekki sportúr, þannig að engin kafaraúr. Þó Sean Connery hafi verið með Rolex Submariner í James Bond myndunum, þá þýðir það ekki að við eigum að gera það líka, við erum ekki James Bond.

Tissot Classic Dream

Byrjum þetta á aðgengilegasta úrinu á þessum lista með framtaki Tissot. Það er ágætt úrval af formlegum og fáguðum úrum frá Tissot, hvort sem það er Gentleman-lína þeirra sem virkar vel sem samblanda af úri sem hægt er að nota dag frá degi eða sem formlegt úr, en einnig hefði verið hægt að velja Le Locke-línu þeirra en þar sem ég hef það ekki í búðinni að stöddu hef ég valið Classic Dream-línu þeirra.

Úrið er í stærri kantinum fyrir formlegt úr þar sem það mælist góðir 42mm að stærð, þó finnst mér það virka og jafnvel klæðast minna vegna þess hversu þunnt það er. Brúna leðurólin tónar einnig frábærlega við hvítu skífuna sem skreytt er rómverskum tölustöfum.

Tudor 1926

Tudor eru best þekktir fyrir sportúr þeirra og er Black Bay kafara lína þeirra lag vinsælust, ég tel hins vegar 1926-línuna vera vanmetna. Þessi úrafjölskylda er nefnd eftir stofnári Tudor, þar sem Hans Wilsdorf – sem er einnig stofnandi Rolex – kom boltanum hjá Tudor af stað árið 1926. Úrin eru sjálftrekkt en ná samt að haldast þunn og falla því vel undir skyrtulíningar.

Hönnunarlega séð eru úrin virkilega sígild og tímalaus þar sem þau vitna mikið í fortíðina, ekki bara Tudor heldur úrageirans í heild, þar sem gylltu vísarnir og strikin á hvítum skífugrunni var virkilega vinsæl hönnun á fyrri öld. Úrkassinn er í stærri kantinum, 41mm, og hentar hann því íslenskum karlmönnum einkar vel.

Breitling Premier

Mig langar að setja smá athygli á formlegt úr sem er dálítið öðruvísi. Pistasíuliturinn á þessu Premier úri frá Breitling er svo sannarlega ekki fyrir alla, ég vil samt breyta þeirri sýn og koma með ástæður gegn þeirri hugmyndafræði. Til að byrja með þá er skífan virkilega falleg og er erfitt að þræta fyrir annað, einnig er þetta eitt af þeim fáu formlegu úrum sem ég tel mögulegt að klæða með nánast hverju sem er, fyrir utan svört jakkafötum, smókingfötum eða jogging galla.

Úrið er nógu fínt til að það gangi gullfallega með bláum jakkafötum og brúnum einnig, en það er líka nógu bjart til að hægt sé að nota það við gallabuxur og hvítan bol – og þá sérstaklega þegar sólin skín. Úrið er einnig það eina á þessum lista með skeiðklukku. Úrið er í þægilegum 40mm og er það handtrekkt, sem er alltaf kostur í minni bók. Ef þið viljið lesa um sögu Premier-fjölskydunnar þá getið þið gert það hér.

Longines Master Collection

Sem einhver sem á þetta sama úr, bara í öðrum lit, þá varð ég að hafa það á listanum og get þar með vottað fyrir það að það gengur við allan formlegan klæðaburð. Hvort sem það eru óformleg jakkaföt eða fínasta púss, þá mæli ég eindregið með þessu úri. Okey, nóg af því að ég sé hlutdrægur í garð úrsins og förum að tala um að það í fúlustu alvöru.

Úrkassinn er 38mm að stærð, sem gerir það að góðri milli stærð fyrir flestalla karlmenn, og póleraður sem gefur úrinu smá glans. Skífan er gróf, vísarnir einstaklega fallegir á litinn og eru tölustafirnir á skífunni áletraðir í hana. Af gefinni reynslu, þá gæti ég ekki mælt meira með þessu úri.

NOMOS Ludwig

Í fullri hreinskilni, þá er orðið erfitt að finna ný lýsingarorð til að lýsa mínum tilfinningum og ástríðu fyrir þessum smáa þýska framleiðanda. Ég hef haft þann heiður að fá að skrifa nokkrar greinar um Nomos og mér finsnt hálf ótrúlegt að ég hafi ekki ritað um þetta einstaka úr hingað til.

Ég myndi ganga svo langt að segja þetta vera mitt uppáhalds formlega úr sem við höfum í verslun okkar. Úrið kemur í smáum – en fullkomnum – 33mm og er það aðeins 6,6mm á þykkt, sem gerir það langþynnsta úrið á þessum lista. Skífan gerist heldur ekki fallegri þar sem hún er úr emeleringu, skreytt með rómverskum tölustöfum. Herraúr gerast varla fágaðri.

Við höfum um nóg að velja þegar það kemur að fínum og fáguðum úrum og eru mörg hver nægilega formleg til að gleðja hjarta undirritaðs. Þegar gerðir eru listar með einungis fimm úr þá er erfitt að gera öllum til geðs og biðst ég afsökunar ef að ykkar uppáhalds formlega úr komst ekki á þennan lista.

Ég, og allt Michelsen 1909 teymið, býð ykkur hjartanlega velkomin í verslun okkar á Hafnartorgi til að skoða formleg úr og athuga hvort þú finnir eitt nýtt til að bæta í safnið.