Ókeypis heimsending.

Stundaglasið, bréf 11

Velkomin í Stundaglasið, vikulega uppfærslu frá okkur í Michelsen 1909 um allt það helsta frá síðastliðinni viku í úrabransanum.

Í þessari viku höfum við virkilega þéttan pakka þar sem merkin okkar hrifsuðu sviðsljósið til sín. Breitling,  Longines, TAG Heuer og Tissot létu vel í sér heyra og munum við kynna allt það nýjasta frá þeim og við skoðum viðskiptahliðina þar sem við förum yfir nýjustu útflutningstölur svissneskra úra.

Breitling

Árið 1962 fór geimfarinn Scott Carpenter út í geim, sem hluti af Mercury-Atlas 7 verkefni NASA, en flaugin fór um sporbaug jarðar og þrjá hringi í kringum jörðina. Flugið entist í næstum fimm klukkustundir úti í geim áður en hún sneri til baka, og varð Scott Carpenter með þessu verkefni fjórði Bandaríkjamaðurinn til að fara út í geim og aðeins annar sem komist hafði í sporbaug jarðar.

Í samhengi úra er þetta verkefni mikilvægt vegna þess að úrið sem Scott Carpenter var með yfir geimbúningi sínum var fyrsta svissneska úrið til að fara út í geim. Þetta úr sem hann hafði hafði verið sérstaklega gert fyrir hann af Breitling, úrið sýndi tímann með 24 klukkustundum á skífunni í stað hefðbundnum 12 klukkustundum og var glerhringur úrsins breiðari en áður hefði verið á Navitimer úrunum. Þetta sérútbúna úr var síðan innblásturinn fyrir Cosmanaut-línu Breitling sem lenti á almennum markaði aðeins sex mánuðum seinna.

Allt þetta leiðir að nútímanum, þar sem Breitling gaf út í vikunni virkilega takmarkaða útgáfu af Cosmanaut-línunni í tilefni 100 ára afmælis Scott Carpenters, sem þó er látinn. Úrið er í platínu og 41mm að stærð. Ef þú vilt nálgast þetta úr, þá er það hægara sagt en gert þar sem þeir munu aðeins framleiða 50 eintök, og vegna platínunnar sem notaðir eru í kassann og ólalásinn þó kostar þetta úr yfir sex milljónir króna.

Navitimer-fjölskyldan er ekki sú eina sem fékk nýtt og takmarkað úr í vikunni þar sem Top Time-fjölskyldan hélt sinni vegferð áfram, Breitling og þýski knattspyrnu risinn Bayern München hafa verið í samstarfi síðustu mánuði. Þetta samstarf leiddi svo til nýs Top Time, til að fagna 125 ára afmæli þessa sögulega fótboltaliðs. Úrið er takmarkað við aðeins 125 eintök og verður því erfitt að nálgast það þar sem það er auk þess eingöngu selt í Þýskalandi, en það er mjög erfitt að tala gegn fegurð úrsins.

Longines

Longines gáfu út kafaraúr sem við fórum yfir í síðasta bréfi Stundaglassins, en í þessari viku horfðu þeir hins vegar til himna með tveimur nýjum Spirit Zulu Time-úrum. Þessi úr fengu stjörnumeðferðina þar sem nýjasti erindreki Longines, Henry Cavill, kynnti þau inn með sínum einstaka glæsibrag. Fyrra úrið sem við ræðum er samblanda af mínum tveimur upphálds úrum í þessari línu sem eru svörtu og bláu útfærslurnar. Þetta úr hefur bláan glerhring, svarta skífu og einstaka gulltóna sem binda úrið í eina heild.

Höldum okkur við gullfallega hluti með seinna úrinu, þetta er úrið sem Henry Cavill kynnti. Glerhringurinn er úr 18 karata rósagulli og hefur burstaða áferð í stað glansandi sem keramík glerhringirnir bjóða upp á.

Mig langar að nefna úrbakið sem, í fyrsta sinn í þessari línu, er úr safírgleri. Ástæðan fyrir því er að verkið hefur verið skreytt á sérstakan hátt, sjálfvindulóðið er rósagyllt og með hnöttinn grafinn á það. Einnig má sjá línu á hnettinum sem markar Zulu-tímabeltið (sem er það sama og GMT-tímabeltið án sumartíma). Þetta úr er gert svona af einni ástæðu, til að fagna 100 ára afmæli fyrsta úrsins til að sýna tvö tímabelti sem við ræddum um í grein okkar um sögu Longines.

TAG Heuer

Líkt og oft hefur verið ritað þá eru TAG Heuer opinber tímatökuaðili fyrir Formula 1 kappaksturinn eftir rúmlega 20 ára pásu. Þeir sem fylgja með Formúlunni vita einnig að þetta var vika Monaco kappakstursins og í tilefni þess hefur TAG Heuer stækkað Monaco-línu sína, en TAG Heuer Monaco er opinbert úr Monaco Grand Prix.

Byrjum á úri sem er virkilega töff en það byggir á gömlu vasaúri sem innihélt tvöfalda skeiðklukku. Þetta nýja úr kemur í 39mm, er 15mm á þykkt og er takmarkað við 970 eintök.

TAG Heuer hafa notað Monaco-línuna mikið til að gera tvöfaldar skeiðklukkur, líkt og sást á Watches and Wonders úrahátíðinni. Úrið er í títaníum og er PVD-húðað svart. Úrið er einstaklega létt, eins og títaníum úr eru, en þetta er einstakt vegna þess gangverkið er úr títaníum. Þessi blanda gerir það að verkum að úrið er aðeins 86 grömm, ól og lás meðtalið. Af þessum 80 grömmum er gangverkið aðeins 30 grömm. Þessi 86 grömm eru fáanleg fyrir litla 145.000,- svissneska franka, eða um 25 milljónir króna.

Þriðja úrið er fyrir bílaáhugafólkið, þar sem það er Gulf sérútgáfa. Flestir sem fylgjast með Formúlinni ættu að þekkja Gulf en sterkasta tenging TAG Heure og Gulf er úr Le Mans kvikmyndinni, þar sem Gulf merkið klæðir Porsche bílinn sem Steve McQueen keppir á í myndinni. Steve McQueen, konungur kúlsins, notaði Monaco úr í myndinni og er enn í dag legend ambassador hjá TAG Heuer. Þetta Monaco Gulf vísar einnig í Le Mans myndina, þar sem það er takmarkað við 971 eintök en myndin kom út árið 1971.

Tissot

Tissot hefur gefið út nýjan Seastar 1000 sem er rósagyllt og 300 metra vatnsþétt. Litablanda úrsins er sérstök og þegar maður les litina myndi maður halda að hún gengi ekki en úrið blandar saman rósagylltu, sægrænum og hvítum. Ég vill hins vegar segja að þessi lita samsetning á einhvern ótrúlegan hátt gangi.

Viðskiptafréttir

Það má segja að markaðurinn hafi brugðist róttækt við tilkynningu Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, frá því í apríl. Hann tilkynnti toll á vörur frá Sviss og auðvitað þar á meðal úr en þetta hefði þýtt 31% toll á innflutt svissnesk úr til Bandaríkjanna. Áhrif má sjá núna, þar sem nýjar tölur sem sýna um útflutning svissneskra úra voru birtar í vikunni.

Tölur sýna að útflutningur til Bandaríkjanna tók 149% stökk milli ára í apríl. Ástæðan fyrir þessu er einföld þar sem markaðurinn fór í róttækar aðgerðir þar sem söluaðilar og dótturfyrirtæki merkjanna pöntuðu inn gríðarlegt magn svissneskra úra, áður en tollurinn tæki gildi. Nú hefur þessum 31% toll verið frestað og er hann eins og stendur í 10%. Sú tala ein og sér hefði leitt til mikillar aukningar á útflutnings til Bandaríkjanna, en þó tel ég það ekki vera nærri 150% aukningu.

Aðrar tölur í þessari skýrslu eru hins vegar slæmar þar sem ef þessi útflutningsaukning til Bandaríkjanna er tekin úr mælingum, þá er breytingin 6,4% lækkun á heimsvísu í stað 18% hækkunar.

Hér með líkur bréfi ellefu af Stundaglasinu. Eins og sést, þá stóðu merkin okkar sig með prýði og verður gaman að sýna þessi úr þegar þau lenda í verslunum okkar. Ég vil minna á grein vikunnar þar sem við ræddum um dýrustu úr allra tíma.

Takk kærlega fyrir lesturinn og ég hlakka til að kynna fyrir ykkur allt það nýjasta í bréfi tólf af Stundaglasinu næsta föstudag.