Kronaby Carat

kr.69.900

Vertu snjallari með þessu fallega úri frá Kronaby, sem þarf aldrei að hlaða.

Uppselt

Hafnartorg ❌

Kringlan ❌

Viltu fá tilkynningu þegar varan kemur aftur á lager?

SKU: S0716/1 Vöruflokkur: Brand:

Vörulýsing

Úrkassi: 38mm – gyllt stál
Úrverk: Snjallúrverk – tengist við Android og iPhone – allt að tveggja ára rafhlöðuending
Vatnsvörn: 100M
Skífa: Silfurlituð – vísar
Gler: Safírgler
Keðja: Gyllt stál
Ábyrgð: Tveggja ára

Hvernig virkar Kronaby?

Þú velur þá eiginleika sem henta þér best og aðlagar úrið þitt að þér með mjög einföldu viðmóti í Kronaby appinu. Hér eru dæmi um þá snjalleiginleika sem þú getur valið úr.

Almennir eiginleikar

Sjálfvirk tímabelti

Vertu alltaf tímanlega

Kronaby tryggir að þú sért alltaf á réttum tíma, þó þú ferðist yfir á annað tímabelti sýnir úrið alltaf réttan tíma.

Góð rafhlöðuending

Aldrei að hlaða

Rafhlaðan í Kronaby endist í allt að tvö ár (fer eftir notkun), svo þú þarft aldrei að hlaða úrið þitt.

Úrið týnt?

Aldrei týna tímanum

Skildurðu úrið eftir í ræktinni, heima eða týndir því? Þú getur séð í appinu hvar úrið var síðast tengt við símann.

Hljóðlátur vekjari

Ljúfir morgnar

Hljóðlátur titringurinn í úrinu tryggir að þú vaknar vel en aðrir í kringum þig sofa ljúft áfram. Þú getur líka notað þetta sé reminder.

Stattu þig

Heilsan

Láttu Kronaby minna þig á standa upp með léttum titringi þegar þú ert búin/n að sitja of lengi.

Sérsniðnar tilkynningar

Ekki missa af því mikilvæga

Það er þunn lína milli þess að vera tengd/ur og trufluð/truflaður. Þess vegna leyfir Kronaby þér að velja hvaða tilkynningar þú færð í úrið.

Skífu eiginleikar

Auka tímabelti

Fylgstu með útlöndum

Kronaby leyfir þér að velja annað tímabelti til að fylgjast með tímanum erlendis.

Niðurteljari

Tímastjórnun

Láttu úrið telja niður, einbeitt þú þér og úrið lætur þig vita þegar tíminn er liðinn.

Skrefamælir

Gakktu alla leið

Settu þér daglegt markmið um fjölda skrefa og sjáðu hversu nálægt markmiðinu þú ert.

Skeiðklukka

Taktu tímann

Kronaby getur tekið tímann á öllu því sem þú þarft að gera.

Dagsetning

Hvaða dagur er?

Það er mjög mikilvægt að vita hvaða mánaðardagur er. Ekki viltu fara að vinna á frídegi?

Takka eiginleikar

Taktu mynd úr fjarska

Sjálfur á hærra plani

Kronaby skilur engan útundan. Stilltu símanum upp, ýttu á takka á úrinu og voilà, allur vinahópurinn eða fjölskyldan er saman á mynd.

Síminn týndur?

Ekki lengur og aldrei aftur

Hvert settirðu aftur símann? Ýttu á takka á Kronaby og úrið sparar þér þessa óþolandi leit að símanum.

Stjórnaðu tónlistinni

Réttu lögin

Með einum takka getur þú stjórnað tónlistinni eða podcasti. Play, pása, hækka, lækka, næsta lag, fyrra lag.

Fylgdu mér heim

Upplifðu öryggi

Með einum takka getur þú sent skilaboð á ástvin, sem leyfir þeim að fylgjast með þér á göngunni heim. Það er eins og þau séu með þér, en bara úr fjarska.

Skella á

Veldu símtölin

Í tengdum heimi getur verið fínt að taka sér smá pásu. Kronaby leyfir þér að hafna símtali með einum takka.

Mundu staðinn

Þú varst hér

Það er alltaf gaman að upplifa nýja hluti og uppgötva nýja staði, en mundu bara að ýta á takkann svo þú munir hvar það var.

IFTTT

If This Then That

Stjórnaðu snjallheimilinu og uppáhalds öppunum þínum með Kronaby og IFTTT. Kveikja ljósin? Hella upp á kaffi? Opna bílskúrshurðina? Þú getur gert það með Kronaby.

Sérsniðnar tilkynningar

Þegar allur heimurinn virðist keppa um athygli þína, hjálpar Kronaby þér að einbeita þér bara að því sem þér þykir mikilvægt. Vægur titringur á úlnliðnum kemur bara frá mikilvægasta fólkinu þínu og því sem þú vilt.

Stjórnaðu tónlistinni

Með einum takka getur þú stjórnað uppáhalds tónlistinni þinni og podcöstum. Kronaby gefur þér algjöra stjórn á tónlistinni, hvar og hvenær sem er. Þú þarft bara að ýta á play…

Finndu símann þinn strax

Með Kronaby þarftu aldrei að leita að símanum þínum aftur. Þú ýtir bara á einn takka og síminn byrjar að hringja.

Meiri upplýsingar

Skífulitur

Ól / Keðja

Kyn

Efni

Stærð

Eiginleikar

, , ,

Úrverk

,

Steinar
Litur steina
Demantastærð
Box og pappír
Árgerð
Vöruflokkar