victorinox-logo

Frá 1884 hafa Victorinox verið sérfræðingar á sínu sviði. Upphaflega hanna þau og framleiða svissneska vasahnífinn, en fyrirtækið hefur stækkað gríðarlega síðan þá og í dag eru svissnesk, vönduð úr meðal þeirra vöruflokka.

Hvers vegna Victorinox?

Magnús D. Michelsen
sölustjóri Michelsen svarar

Victorinox eru vönduð úr á afar hagstæðum verðum. Þau eru framleidd í Sviss (og eins og öll vita eru Svisslendingar langfremstir í úrum), með rispufrí safírgler og vönduð úrverk. Jafnframt eru þau öll vatnsheld með að lágmarki 100M vatnsþéttni.

Það skiptir ekki máli hvort þú sért að horfa á rafhlöðuknúin úr eða sjálftrekkt, Victorinox býður upp á gríðarlega fjölbreytt úrval, í sparilegum og sportlegum úrum. I.N.O.X. úrin eru einhver mest prófuðu úr heims, þar sem þau undirgangast 130 próf.

Victorinox hjá Michelsen

Victorinox smellpassar í vöruúrval Michelsen sem stefna að því að bjóða upp á það fremsta og vandaðasta hverju sinni, enda virkilega vönduð og falleg úr á sanngjörnum verðum. Úrin eru hönnuð og framleidd í Sviss, þau eru öll með rispufríum safírglerjum og að lágmarki 100M vatnsþétt.

Þú færð Victorinox hjá Michelsen Kringlunni og á michelsen.is.