Seiko King Seiko 1969 Re-Interpretation ‘Rising Dragon’

kr.550.000

Áberandi mjúkar línur einkenna þetta King Seiko módel. King Seiko línan var hönnuð 1965 og endurvakin 2020.

Á lager

Hafnartorg ✅

Kringlan ❌

Hafðu samband

Hægt er að versla þessa vöru á netinu, en starfsmaður Michelsen aðstoðar þig við það. Hafðu samband hér fyrir frekari upplýsingar.

SKU: SJE115J1 Vöruflokkar: , , Tag: Brand:

Vörulýsing

Limited Edition – aðeins 700 úr framleidd

King Seiko var stofnað á 7. áratug síðustu aldar á sama tíma og Grand Seiko – og til höfuðs Grand Seiko. Merkin tvö áttu að keppa innbyrðis um gæði og koma Seiko sem heild upp á hærra plan. Grand Seiko vann þann slag, en nú hefur King Seiko verið endurvakið.
Seiko kynnti 45KS árið 1969 og setti í alþjóðlegar úrsmíðakeppnir þar sem keppt var um nákvæmni. 45KS varð fyrsti tímamælir Seiko, og Japans, til að hljóta „chronomètre“-vottun, sem einstaklega nákvæmur mekanískur tímamælir. Seiko sótti innblástur í þessi merku tímamót í sögu sinni og kynnir nú ‘Rising Dragon’ endurútgáfu af upprunalega úrinu. Árið 2024 er ár drekans og ‘Urokomon’-mynstrið líkir eftir hreistri dreka, en táknar auk þess velmegun og lífsþrótt í japanskri menningu.
Þessi endurútgáfa svipar gríðarlega til orginalsins, mjúkar og ávalar línur úrkassans enduróma hérna, með dagsetningu hjá kl 3 og tvöfalt klukkustundamerki hjá kl 12. Keðjan er svo eins og keðjurnar frá Seiko voru á 7. áratugnum.
Þetta úr er einungis fáanlegt í sérvöldum verslunum á heimsvísu.
Úrkassi: 39,4mm – stál
Úrverk: Sjálftrekkt – 6L35 með 45 tíma power reserve
Vatnsvörn: 50M
Skífa: Blá – vísar
Gler: Rispufrítt safírgler – speglunarvörn
Keðja: Stál
Ábyrgð: Tveggja ára

Meiri upplýsingar

Skífulitur

Efni

Stærð

Eiginleikar

,

Úrverk

Ól / Keðja

Kyn