Það er Longines þema hjá okkur í Michelsen um þessar mundir þar síðasta grein var einnig um Longines. Í henni fórum við yfir sögu eins merkasta úraframleiðanda sögunnar, sem er jafnframt elsti framleiðandinn sem við bjóðum upp á í verslun okkar. Eftir þunga og langa grein þá verður þessi með einföldum máta þar sem við teljum upp mín 10 uppáhalds Longines úr.
10. Longines Spirit Zulu Time
Spirit Zulu Time-lína Longines eru ábyggilega mín GMT úr á markaðinum, ég hef mikið rætt hana í mismunandi greinum og endaði hún í fyrsta sæti þegar ég ræddi um mín uppáhalds GMT úr í verslun okkar. Reglulegir lesendur sem lásu þá grein gætu munað að ég svindlaði og valdi tvö úr í efsta sæti, seinna úrið mun koma fram síðar á þessum lista. Þetta úr sker sig frá línunni með gullhúðuninni sem gefur úrinu fágaða og hlýja tóna.
9. Longines Prima Luna
Ég var ekki hrifinn af þessari línu við fyrstu kynni en því meira sem ég horfi á hana því hrifnari verð ég. Úrin eru einstaklega elegant, líkt og framleiðandinn sjálfur. Ég valdi græna litinn til að fá sviðsljósið að sinni en grænn er ekki litur sem Longines er sérstaklega þekkt fyrir. Græni liturinn hér nýtur sín hins vegar frábærlega og hvernig hann tónar við tunglstöðuna gefur sérkennilega fágun sem finnst ekki annars staðar.
8. Longines Mini Dolce Vita
Höldum okkur í dömuúrum að sinni og förum í Mini Dolce Vita-línuna. Líkt og nafnið gefur til kynna, þá er þetta minni útgáfa af Dolce Vita-úrunum sem mun bregða fyrir síðar á listanum. Talsmaður þessa úra er engin önnur en Jennifer Lawrence, sem er fræg fyrir leik sinn í Hungurleikunum og X-Men myndunum. Þetta úr er líkast skartgrip af þeim úrum sem ég nefni í þessum lista en kemur það einstaklega vel fyrir á hendi.
7. Longines Master Collection
Flóknasta úrið á þessum lista er þetta þrefalda dagatal í Master Collection-línu þeirra sem er fágaðasta herralína þeirra. Úrið sýnir vikudag, mánaðardag og mánuð innan þrefalda dagatalsins. Það er hins vegar ekki allt sem úrið hefur upp á að bjóða, þar sem það sýnir einnig tunglstöðu og hefur einn af mínum uppáhalds eiginleikum: skeiðklukku.
6. Longines Conquest
Conquest-línan er elsta lína Longines en sögu hennar má rekja til ársins 1959. Árið 2023 uppfærði Longines Conquest-línuna með nýjum kassa og nýrri keðju, nokkrum mánuðum seinna bættu þeir við Conquest úri í 38mm, sem er mín stærð þegar það kemur að úrum. Ég valdi bláu skífuna þar sem blár er einkennislitur Longines og ef þig vantar úr til að gera hvað sem er og við hvaða til efni þá eru fá betri en Conquest úrin í 38mm.
5. Longines La Grande Classique
Fágaðasta dömulína Longines er La Grande Classique en úrin í línunni er einstaklega þunn. Þessi lína hefur alltaf einkennst af þessum elegans sem fylgir stílhreinu keðjunni og þunna kassanum. Þessi útgáfa með perlumóður skífu og demöntum er án efa mín uppáhalds, þar sem klassinn lekur af henni.
4. Longines Dolce Vita
Við höfum þegar rætt Mini Dolce Vita, en nú er komið að stærri helmingi Dolce Vita línunnar. Ég er alltaf stór aðdáandi ferhyrndra úra og þessi Cartier Tank-stíll er alltaf negla. Longines á hins vegar mjög langa sögu af ferhyrndum úrum sem við fórum yfir í grein okkar um sögu Longines.
3. Longines Conquest
Annað úrið í þessari uppfærðu Conquest-línu þeirra og í þetta sinn er það minni gerðin. Þegar þeir uppfærðu línuna árið 2023 þá gáfu þeir út nýju úrin í 34mm og 42mm áður en þeir bættu við 38mm. Þetta úr er 34mm, með bleikri skífu og er mitt uppáhalds dömuúr frá Longines, þar sem það er fullkomlega sportlegt til að nota dagsdaglega.
2. Longines The Longines Master Collection 190th Anniversary – Special Edition
Valið milli fyrsta og annars sætis er erfiðasta val sem ég hef þurft að gera þegar það kemur að topplistunum. Master Collection afmælisútgáfan sem gerð var til að fagna 190 ára afmæli framleiðandans á sér stóran stað í hjarta mínu, þar sem ég keypti eitt af þessum úrum til að fagna útskrift minni úr menntaskóla og verður það alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér.
1. Longines Spirit Zulu Time
Eins mikið og mig langaði að setja efst úrið sem ég persónulega á, þá get ég ekki neitað því að þetta er ekki aðeins mitt uppáhalds frá Longines, heldur einnig mjög ofarlega fyrir mitt uppáhalds úr yfirhöfuð. 39mm stærðin er fullkomin og eru hlutföllin með þeim bestu á markaðinum. Vanalega finnst mér svartar skífur leiðinlegar en hvernig þessi passar saman við hvítu vísana og létta ljósbláa tóninn er fullkomið. Þetta er eitt af fáum úrum sem ég tel vera fullkomin.
Þar með líkur þessum lista af mínum uppáhalds úrum frá einum af mínum uppáhalds framleiðendum. Þau úr sem ég nefndi hér eru aðeins brot af því sem við höfum upp á að bjóða í verslun okkar á Hafnartorgi, og hvað þá af því sem Longines hefur upp á að bjóða í flota sínum.