Úrasala á uppboðum er furðuleg, líkt og uppboð yfirhöfuð reyndar. Dýrustu úr sem vitað er til að hafi selst, gerðu það öll á uppboði. Yfirleitt seljast þessi úr á uppboði vegna sögulegs gildis, hvort sem úrið hafi verið partur af mikilvægum atburð í sögunni eða í persónulegri eign heimsfrægs aðila.
Í 2. bréfi Stundaglassins nefndum við meðal annars að úr sem Neil Armstrong, fyrsti maður til að stíga fæti á tunglið, var sett á uppboð. Þetta einstaka Omega úr seldist á uppboði þann 17. apríl á rúmlega 2,2 milljónir Bandaríkjadala. Þessi upphæð samsvarar 270 milljónum íslenskra króna og þó upphæðin sé vissulega virkilega há bliknar hún í samanburði við úrin sem við munum listum upp hér.
Dýrasta Rolex úr allra tíma
Paul Newman útgáfan af Rolex Cosmograph Daytona er eitt þekktasta úr sögunar. Úrið er kennt við Paul Newman, leikara, leikstjóra og ökuþór, þekktastan fyrir leik sinn í myndum á borð við Butch Cassidy and the Sundance Kid og Cool Hand Luke. Konan hans gaf honum úrið árið seint á sjöunda áratugnum og lét hún grafa á úrbakið „Drive carefully me.“ Þessi skilaboð endurspegluðu áhyggjur hennar fyrir kappakstursvilja eiginmanns síns. Paul notaði úrið mikið og hvort sem það var í kvikmyndum, viðtölum eða á kappakstursbrautinni, þá var það virkilega sjáanlegt á úlnlið hans.
Sagan segir að árið 1984 hafi Paul Newman gefið úrið frá sér til James Cox, tengdasonar síns. Sagan segir að þeir hafi verið að byggja tréhús og Paul hafi spurt tengdason sinn hvað klukkan væri. James, ekki með úr á sér segist ekki vita það, þar sem hann gengi ekki með úr. Út frá þessu samtali eignaðist James það sem myndi verða verðmætasta Rolex úr sögunar.
Nærri 40 árum seinna, árið 2017, fór þetta úr á uppboð hjá Phillips í New York og seldist á 17,8 milljónir Bandaríkjadala.
Dýrasta Audemars Piguet úr allra tíma
Þrátt fyrir að vera sögulegur framleiðandi og eitt stærsta merkið í úraheiminum, þá hefur AP ekki tekist að trekkja að (tiltölulega) háar upphæðir á uppboðum. Árið 2021 seldist dýrasta úr framleiðandans og er það aðeins í 17. sæti yfir dýrustu úr allra. Þeir sem kannast við Audemars Piguet þekkja sennilega vinsælustu línu þeirra, Royal Oak. Línan er langvinsælust hjá þeim, bæði hjá viðurkenndum söluaðilum og á endursölumarkaðanum sem varð stærri en nokkru sinni fyrr í Covid – og stór ástæða þess er Audemars Piguet Royal Oak. Úrið er hannað af Gerald Genta, þekktasta úrahönnuði allra tíma.
Að kalla þetta úr Royal Oak er fræðilega séð rétt, en þegar það kemur að tilfinningalegu gildi þá myndu margir vilja horfa í hina áttina. Úrið er hluti af Royal Oak Concept-línunni og er þar með ólíkt öllum öðrum úrum í Royal Oak, fyrir utan önnur úr í Concept-hluta hennar. Úrið var gert í samstarfi við Marvel og er það mjög greinilegt, þar sem Black Panther persónan er þrívíð á skífunni sjálfri. Uppboðið sjálft var einnig óhefðbundið, þar sem þetta fór ekki á uppboð hjá tilteknum uppboðsaðila á borð við Phillips eða Sotheby’s, heldur var þetta einkauppboð sem Audemars Piguet hélt. Má nefna að Kevin Hart var veislustjóri og stjörnur á borð við LeBron James og Serena Williams létu sjá sig.
Úrið seldist árið 2021 á þessu uppboði fyrir rúmlega 5 milljónir Bandaríkjadala, þrátt fyrir að þessi upphæð sé há þá ber að nefna að hún er tæplega þriðjungur þess sem Rolex úrið nældi sér í nokkrum árum áður.
Patek Philippe
Það er enginn framleiðandi sem snertir Patek Philippe þegar það kemur að uppboðum. Árið 2023 voru 9 af topp 10 dýrustu úrum sem selst höfðu á uppboði frá Patek Philippe. Eina undantekningin var Paul Newman úrið.
Ég kýs seinasta valmöguleikann og tel mig hafa valið áhugaverðasta úrið, en hvað veldur því að þetta sé áhugaverðasta úrið? Auðvelda ástæðan er að þetta er eina „vasaúrið“. Ég valdi þetta hins vegar vegna sögunnar sem fylgir því. Úrið nefnist Henry Graves Supercomplication og líkt og nafnið gefur til kynna er það nefnt eftir manni sem hét Henry Graves Jr. Henry var bankamaður í New York á þriðja áratugnum en ásamt bankastörfum sínum var hann einnig mikill úraáhugamaður og -safnari. Sagan segir að hann hafi farið í samkeppni við James Ward Packard, sem þekktastur var fyrir Packard Motors, og keppni þeirra snerist um hvor þeirra ætti flóknasta úrið.
Árið 1933 fékk Henry Graves Patek Philippe til að gera eins flókið úr fyrir sig og þeir gætu gert. Patek svaraði kallinu þar sem úrið innihélt 24 mismunandi eiginleika (e. complications). Þessi úr, Supercomplication, lét úrið sem Packard fékk frá Patek sex árum fyrr líta út eins og ungbarnaúr þar sem það innihélt „aðeins“ 10 mismunandi eiginleika.
Eftir andlát Henrys árið 1953 flakkaði þetta úr milli manna í 46 ár, en árið 1999 fór það á uppboð hjá Sothesby’s á rúmlega 11 milljónir dala til Sheikh Saud Bin Mohammed Al Thani (sem Íslendingar muna kannski eftir úr Al Thani-málinu). Eftir andlát Sheikh Al Thani þá fór úrið aftur á uppboð árið 2014, en þar seldist það til óþekkts aðilla fyrir 24 milljónir dollara.
Dýrasta Patek Philippe úr á uppboði
Þá er komið að því sem öll greinin hefur leitt að: dýrasta úr sem hefur selst á uppboði, sem er að sjálfsögðu frá Patek Philippe. Árið 2014 gefa Patek Philippe út fyrsta Grandmaster Chime úrið, til að fagna 175 ára afmælinu og er flóknasta armbandsúr Patek Philippe frá upphafi. Mikilvægt er að gera greinamun á vasaúri og armbandsúri, þar sem flóknasta úr þeirra er vasaúrið sem nefnt var að ofan. Þetta armbandsúr inniheldur 20 mismunandi eiginleika sem koma saman í einstaklega fáguðu úri.
Úrið hefur einnig mjög góða ástæðu fyrir þeim stjarnfræðilega verðmiða sem settur var á úrið þegar það seldist árið 2019. Hver einasti aur af sölunni fór til góðgerðarmála, í rannsóknir í leit að lækningu fyrir Duchenne sjúkdómnum (DMD) en DMD sjúkdómurinn er vöðvarrýrnunarsjúkdómur sem 1 af hverjum 3.500-6.000 drengjum fæðist með.
Fyrir þetta góða tilefni seldist þetta úr fyrir hæstu upphæð sem hefur sést á uppboði hingað til, upphæðin er nærri því tvöfalt hærri en Paul Newman Daytona úrið seldist á og yfir sexfalt hærri upphæð en Audemars Piguet úrið. Þetta sögulega úr seldist á rúmlega 31 milljón Bandaríkjadala, sem nemur rúmlega fjórum milljörðum íslenskum krónum.
Hér með líkur þessari grein þar sem við fórum yfir stjarnfræðilegar upphæðir sem meðalmaðurinn nær varla að melta. Ef þið viljið koma og skoða úr á aðgengilegra verði sem hver sem er getur notið, þá bjóðum við ykkur innilega velkominn í verslun Michelsen 1909 á Hafnartorgi.