Ókeypis heimsending.

Stundaglasið, bréf 12

Velkomin í Stundaglasið, vikulega uppfærslu frá okkur í Michelsen 1909 um allt það helsta frá síðastliðinni viku í úrabransanum.

Í þessari viku förum við víða, bæði landfræðilega og í viðfangsefnum, frá stóru merki sem er að skipta um forstjóra yfir í heilan her af nýjum úrum sem ég hef beðið spenntur eftir að kynna fyrir ykkur.

Longines

Við byrjum á forstjórafréttum og koma þessar úr herbúðum Longines. Síðastliðin fimm ár hefur Matthias Breschan verið forstjóri Longines og undir hans stjórn fóru tekjur Longines dvínandi, þar sem Longines var fjórði stærsti framleiðandi í Sviss árið 2019 og námu tekjur þeirra rúmum 1,6 milljarði svissneskra franka, skv. greiningadeild Vontobel. Fimm árum seinna, 2024, hafði merkið fallið í sjöunda sæti og námu tekjurnar 1,2 milljörðum svissneskra franka.

Ósanngjarnt væri að kenna Matthias Breschan um þessa lækkun þar sem meginástæðan minni sala í Kína, en Longines hefur reitt sig meira á Kína en flest önnur úramerki. Undir stjórn Breschan hefur vöruúrval og áherslur Longines þó tekið stakkaskiptum og er mun fjölbreyttara, þar sem hönnunin hentar vestrænum mörkuðum betur. Á hann skilið mikið lof fyrir að auka fjölbreytnina og minnka nauðsyn þess að treysta á Kína sem markað. Minnkandi sala í Kína einskorðast ekki bara við Longines í úrum og hefur áhrif á merki í öllum geirum lúxusbransans sem hafa fundið fyrir rýrnun hjá þessum stærsta markaði heims.

Maðurinn sem tekur við af Matthias Breschan sem forstjóri Longiens er Patrick Aoun. Patrick hefur verið hátt settur innan Longines í átján ár sem svæðisstjóri í Mið-Austurlöndum og í Asíu, hann hefur því mikla þekkingu á þessu svæði til að tækla þau vandamál sem Longines stendur frammi fyrir.

Seiko

Þegar talað er um Seiko þarf að horfa á hvað gerir merkið einstakt. Sumir myndu segja sagan eða gæðin, en ég vil meina að það sem gerir Seiko einstakt í dag er einstök þekking, geta og glæsileiki þeirra þegar að kemur að skífum og Arita Porcelain skífurnar staðfesta það.

Frumsýnd árið 2019 og hefur frá upphafi hlotið mikið lof, skífurnar hafa verið í mörgum línum innan Presage-fjölskyldunnar og er hún nú í fyrsta skipti í nýju Classic Series-úrunum frá Seiko. Allir sem kannast við postulín þekkja einstöku áferðina sem efnið hefur og þessi nýja skífa lítur smá út eins og golfkúla í stað þessarrar hefðbundnu, sléttu skífu sem postulíns skífurnar eru vanalega. Mér finnst þetta virkilega skemmtilega útfærslu á skífu.

Zenith

Zenith hefur gefið út tvö ný kafaraúr í Defy-línu sinni. Úrin fylgja stefnu sem Zenith hefur verið að vinna með síðastliðin tvö ár þar sem þeir gefa út eitt í nútímalegri línum sínum, sem í þessu tilfelli er Extreme Diver úrið, og annað sem fylgir sígildari hönnun, og að sinni er það Revival Diver úrið.

IWC

Við höfum oft rætt IWC, sama hvort sem það eru ný Ingenieur úr eða ný úr í Portugieser-línunni. Oftast ræðum við um Pilot-línuna, í þetta sinn erum við með Top Gun útfærslu þar sem horft er til sandsins, þar sem keramikkassinn er ekki hvítur líkt og síðast, heldur sandbrúnn.

Oris

Oris á heiðurinn af skemmtilegasta úri vikunnar með nýjum ProPilot í Hölstein útfærslu, en Hölstein er þorpið sem Oris var stofnað í árið 1904. Á yfirborðinu lítur þetta út fyrir að vera afar einfalt úr með svörtum kassa og mjallhvítri skífu, en þegar úrið er skoðað í myrkri og sjálflýsandi skífan lýsir sjást falin skilaboð. Oris-bangsinn kemur þá í ljós.

Breguet

Breguet heldur 250 ára afmælisveislunni gangandi með tveimur afar fallegum úrum. Úrin eru flugmannaúr með skeiðklukku og bæði eru úr 18 karata rósagulli. Gangverkið er með því fallegasta sem ég hef séð og er það fyrir mér stærsti kosturinn fyrir þessi úr.

Swatch x Blancpain

Swatch heldur áfram samstarfi sínu við Blancpain en þessi nýja Green Abyss útgáfa gæti verið sú flottasta hingað til. Swatch Group á bæði Swatch og Blancpain og spila hér sama leik og þeir hafa gert áður með Swatch og Omega með MoonSwatch úrunum.

Norqain

Norqain hafa verið á miklu flugi á árinu, frá því að gefa út mörg falleg og einstök úr yfir í það að vera í samstarfi við fótboltagoðsagnir á borði við Gianluigi Buffon og Gary Neville. Nú hafa þeir hugsanlega gefið út úr sumarsins.

Hér með líkur bréfi tólf af Stundaglasinu, merkin eru farin í litríka litrófið er við komum inn í sumarið og ég er að búast þ.a.l. við því að við förum að fá fleiri og fleiri litrík úr fyrir sumarið, Ég vil minna á grein vikunnar þar sem ég fór yfir mín uppáhalds úr frá Tudor.

Takk kærlega fyrir lesturinn og ég hlakka til að kynna fyrir ykkur allt það nýjasta í bréfi þrettán af Stundaglasinu næsta föstudag.