Skilmálar vefverslunar

Skilaréttur og skilafrestur:

Á ónotaðri vöru, verslaði á michelsen.is, er 14 daga skilafrestur frá afhendingu gegn framvísun ábyrgðarskírteinis/vörureiknings eða sýnt fram á kaup vöru með öðrum hætti. Vörunni þarf að skila í upprunalegum umbúðum og með öllum fylgihlutum. Ákveði viðskiptavinur að falla frá kaupunum fer Michelsen eftir stöðluðum leiðbeiningum vegna uppsagnar sem finna má í viðauka I og II í reglugerð nr. 435/2016 um upplýsingar um nýtingu réttar til að falla frá samningi sem og lögum um neytendasamninga, nr. 16/2016.

Viðskiptavinur skal vera ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar. Starfsmenn seljanda meta söluhæfi skilavöru. Seljandi áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða bjóða takmarkaða endurgreiðslu ef ofangreindum skilyrðum er áfátt.

Endurgreiðsla eða inneignarnóta vegna vöruskila nær aðeins til sjálfs vöruverðsins, annar kostnaður svo sem vegna flutnings til eða frá kaupanda er á ábyrgð kaupanda hafi viðskiptavinur valið annan afhendingarmáta en þann ódýrasta sem upp á er boðið. Endurgreiðsla fer fram með því að nota sama greiðslumiðil og viðskiptavinur notaði fyrir viðskiptin nema neytandinn hafi samþykkt annað sérstaklega.

 

Eftirfarandi fellur ekki undir skilarétt:

Sérpantanir þar sem vara er framleidd samkvæmt forskrift neytandans eða ber skýrt auðkenni hans.

Samsett vara sem eðlis síns vegna er ekki unnt að aðskilja frá öðrum vörum eftir afhendingu.

 

Ábyrgðarskilmálar:

Framvísa þarf reikningi og/eða ábyrgðarskírteini þegar komið er með bilaða/gallaða vöru til viðgerðar.

Galla skal tilkynna strax og hans verður vart. Hafi verið átt við vöruna af aðilum sem ekki starfa á vegum seljanda fellur ábyrgð hans úr gildi. Leggi viðskiptavinur ekki fram kvörtun innan tveggja ára frá þeim degi er hann veitti söluhlut viðtöku getur hann ekki borið gallann fyrir sig síðar. Þó getur verið að viðskiptavinur geti borið fyrir sig galla í fimm ár frá því að hlutnum var veitt viðtaka en það er aðeins ef hlutnum er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist um söluhluti.

Ábyrgð gildir ekki á rafhlöðum, fyrir utan sólarrafhlöður, og ólum, t.a.m. leðurólum og öðrum ólum úr náttúrulegum efnum, sem hafa takmarkaðan endingartíma.

Ábyrgðin tekur aðeins til verksmiðjugalla sem sannanlega koma fram í vörunni á ábyrgðartímanum. Ábyrgðin felur ekki í sér rétt kaupanda til þess að fá endurgreiddan viðgerðarkostnað sem stafar af rangri notkun eða slæmri meðferð, raka- eða höggskemmdum, slælegu viðhaldi, slysni eða óhöppum, náttúruhamförum o.s.frv.

Bótaskylda seljanda nær ekki til óbeins tjóns.

Sé varan send til verkstæðis skal kaupandi nota góðar umbúðir. Einnig skal kaupandi tryggja vöruna gegn flutningsskemmdum ef unnt er. Kaupandi ber ábyrgð á vörunni frá því hún er send og þar til seljandi hefur móttekið hana, þ.m.t. skemmdum, hvarfi vörunnar eða eyðileggingar hennar.

 

Þjónustuaðili:

Verkstæði söluaðila að Hafnartorgi annast viðgerðarþjónustu og ábyrgðarmál fyrir allar þær vörur sem seldar eru á michelsen.is, nema annað sé tekið fram.

Verkstæðið er opið virka daga frá 10.00 til 18.00.

Sími á verkstæði er 511-1900 og netfang service[at]michelsen.is.

 

Greiðslur:

Seljandi tekur við þeim greiðslukortum sem Greiðslusíða Teya þjónustar hverju sinni.

Einnig er hægt að greiða með Netgíró, Pei, Síminn Pay, Raðgreiðslum Teya eða millifærslu á reikning seljanda.

 

Seljandi:

Michelsen ehf, Hafnartorgi, VSK númer 10176, sími 511-1900, info[at]michelsen.is.

 

Afhending:

Seljandi býður sendingu með Eimskipum á ákveðin heimilisföng, póstbox Eimskipta, á afgreiðslustaði Eimskipa eða þá þjónustustaði sem Eimskipt býður hverju sinni. Seljandi áskilur sér réttinn til að hafna heimsendingu á pöntunum, og krefjast þess að pöntun sé sótt í verslun.

Einnig er hægt að sækja pantanir hjá seljanda á Hafnartorgi eða í Kringluna án kostnaðar.

Afhendingartími með Eimskipum er alla jafna 1-2 virkir dagar. Afhendingartími á sóttum vörum er alla jafna inni tveggja klukkustunda, á virkum dögum.

Afhendingartími á sérpöntunum getur verið allt að sex mánuðir. Fari afhendingartími yfir sex mánuði hefur kaupandi rétt á endurgreiðslu og skal hann gera það innan sjö mánaða frá pöntun.

Afhendingartími getur tafist vegna óviðráðanlegra aðstæðna, t.d. ef upp koma alvarleg veikindi, andlát, við framkvæmdir, tjón eða slíkt og starfsemi truflast tímabundið. Einnig þá getur verið óvenju mikið álag á ákveðnum dögum sem gæti tafið tiltekt pantana.

Afhendingartími á sérpöntunum á ekki við um Rolex þar sem í mörgum tilfellum er um að ræða margra ára biðlista. Við erum með sérstaka skilmála er varðar Rolex pantanir.

 

Röng vörulýsing / rangt verð / uppseld vara / afslættir:

Seljandi undanskilur sig ábyrgð á rangri vörulýsingu og/eða mistökum í vörulýsingu í vefverslun. Vörulýsing er gerð eftir bestu upplýsingum á hverjum tíma og áskilur seljandi sér rétt til að leiðrétta vörulýsingu án fyrirvara.

Seljandi áskilur sér rétt til að rifta kaupum sé rangt verð skráð á vöru í vefverslun, eða kaupandi hefur mátt gera sér ljóst að rangt verð var á vöru.

Sé vara uppseld getur seljandi boðið aðra sambærilega vöru í stað uppseldu vörunnar eða boðið kaupanda endurgreiðslu.

Seljandi áskilur sér rétt til að rifta kaupum sé afsláttarkóði misnotaður eða notaður til kaupa á annarri vöru eða vörumerki en seljandi ætlaði.

 

Sérpantanir:

Seljandi áskilur sér rétt til að hafna sérpöntun og rifta kaupum, hvenær sem er.

Afhendingartími á sérpöntunum getur verið allt að sex mánuðir. Fari afhendingartími yfir sex mánuði hefur kaupandi rétt á endurgreiðslu og skal hann óska eftir því á skriflegan hátt innan sjö mánaða frá pöntun.

Sérpantanir falla ekki undir skilarétt.

 

Forsala:

Seljandi býður í einhverjum tilfellum upp á að forpanta og greiða vöru og er það þá skýrt tekið fram að um forsölu sé að ræða.

Seljandi gefur í einhverjum tilfellum upp áætlaðan afhendingartíma á vörunni en það er áætlaður tími og seljandi ber ekki ábyrgð breytist afhendingartíminn.

Seljandi áskilur sér réttinn til að rifta kaupum verði breyting á verðlista framleiðanda vörunnar og/eða ef gengi krónunnar breytist.

 

Dagsetning skilmála:

24. febrúar 2026

 

Friðhelgisskilmálar:

Friðhelgisskilmálar (GDPR)

 

Friðhelgis- og kökuskilmálar Rolex:

Rolex hluti:
Á Rolex-hluta vefsíðu okkar gætir þú átt samskipti við innfellda Rolex síðu frá www.rolex.com. Í því tilfelli, gilda eingöngu notkunarskilmálarfriðhelgisskilmálar og kökustefna www.rolex.com.