Seiko kynnir nýjar sérútgáfur af Prospex, sem eru sérframleiddar fyrir Evrópumarkað. Sérútgáfur innblásnar af tærasta vatni í heimi.
Í kjarna Prospex-línunnar er köfun og hönnun þessarra úra er undir áhrifum af einum frægasta og stórkostlegasta köfunarstað í heimi. Þau eru innblásin af hinni fallegu Silfru okkar Íslendinga. Silfra, á Þingvöllum, er gjá sem liggur á milli Norður-Ameríku og Evrasíuflekanna og eini staðurinn gjörvöllum heiminum þar sem kafarara geta kannað gjá milli tveggja heimsálfa. Vatnið kemur úr Langjökli en það flæðir í gegnum hraun og síast á meðan, en það tekur vatnið 100 ár að berast frá jöklinum í Silfru.
Úrin eru tvö, hluti af Land og Sea undirlínum frá Prospex. Annað fyrir könnun í kafi og hitt könnun á landi. Eins og sjá má á úrunum er kafaraúrið innblásið af litunum í Silfru, blátt og grænt, og landúrið grænt og brúnt, innblásið af jarðlitunum ofanjarðar hjá Silfru.
Með báðum úrum fylgir auka ól og bæði eru vatnsþétt niður á 200 metra dýpi. Þau hafa rispufrí safírgler með speglunarvörn og eru með Lumibrite, sjálflýsandi efni, á vísum og klukkustundamerkjum til að auka sýnileika í myrkri.
Prospex vísar í „pro-specs“ og er lína sem stendur undir nafni þegar kemur að köfun, hraða og könnun. Prospex eru praktísk og áreiðanleg, hvort sem það er í vatni, lofti eða á landi.