Seiko Prospex Speedtimer ‘DATSUN Fairlady Z’ – Limited Edition

kr.215.000

Prospex vísar í „pro-specs“ og er lína sem stendur undir nafni þegar kemur að köfun, hraða og könnun. Prospex eru praktísk og áreiðanleg, hvort sem það er í vatni, lofti eða á landi.

Væntanlegt í september.
SKU: SPB517J1 Vöruflokkar: , , , Brand:

Vörulýsing

Limited Edition – framleitt í aðeins 2.500 eintökum

Þessi sérútgáfa af Speedtimer sameinar nútíma úrsmíði og sögu bílaframleiðslu í glæsilegri hönnun, innblásinni af sjöunda áratugnum.
„Speedtimer“ var fyrst kynnt árið 1969 og var það mikilvægur áfangi fyrir Seiko. Sama ár setti NISSAN á markað „Datsun“, sem var fremsta sportbílamerki Japans á þeim tíma.
Árið 1971 sigraði Datsun 240Z, einnig þekktur sem Fairlady Z – og skreyttur Seiko-lógói – í East African Safari Rally, einum erfiðasta kappakstri heims. Datsun 240Z speglar Seiko Speedtimer vel enda bæði stílhrein, sterkbyggð og áreiðanleg.
Þetta Speedtimer-úr hefur marga hönnunareiginleika frá upprunalega DATSUN 240Z rallýbílnum: litina, leturgerðina úr mælaborði bílsins og DATSUN lógóið á skífunni, úrbaki og ólarlásnum.
Úrkassi: 39,5mm – stál
Úrverk: Sjálftrekkt – 6R55 með 72 tíma power reserve
Vatnsvörn: 200M
Skífa: Svört – vísar
Gler: Rispufrítt safírgler – speglunarvörn
Keðja: Stál
Ábyrgð: Þriggja ára

Meiri upplýsingar

Skífulitur

Efni

Stærð

Eiginleikar

, ,

Úrverk

Steinar
Litur steina
Demantastærð
Box og pappír
Árgerð
Vöruflokkar
Vatnshelt

Ól / Keðja

Kyn