Umhirða skarts
Gott er að hafa eftirfarandi í huga til þess að skartgripurinn þinn njóti sín sem best lengur.
Silfur og gull eru mjúkmálmar og skartgripir gerðir úr mjúkmálmum geta verið viðkvæmir. Það er því mælt með að nota skartgripi úr mjúkmálmum ekki við eftirfarandi aðstæður:
- Í ræktinni eða við íþróttaiðkun
- Við garðvinnu
- Við smíðavinnu
- Við uppvask
- Í klórvatni eða í sjósundi
- Þegar notuð eru sterk hreinsiefni
Varast skal að hafa hringa hlið við hlið á fingrum, eða armbönd saman á sama úlnliðnum. Þegar skartgripir nuddast saman slitna þeir hraðar, sérstaklega ef harðir steinar á borð við demanta, safíra eða rúbína eru í skartinu og nuddast upp við gull.
Góð regla er að taka af sér hálsmen og armbönd fyrir svefninn, sérstaklega ef um er að ræða fínlega skartgripi.
Hreinleiki og málmblöndur
24kt gull
24 karata gull er nánast 100% hreint og því bæði einstaklega mjúkt og sveigjanlegt. Þessi mikli hreinleiki gerir það verðmætt, en jafnframt of viðkvæmt til daglegrar notkunar í skartgripum. Hreint gull rispast og mótast auðveldlega, sem er ástæðan fyrir því að það er sjaldan notað eitt og sér í skarti. Flestir skartgripir eru því búnir til úr gullblöndum þar sem bætt er í málm eins og kopar eða silfri til að auka styrk og endingu.
18kt gull
18 karata gull inniheldur 75% hreint gull og er þekkt fyrir djúpan og hlýjan lit. Þar sem það er mýkra en 14kt gull getur það verið viðkvæmt fyrir rispum og hnjaski ef það rekst í harða fleti, og hentar því best í fínlegt skart sem notað er af varfærni. Hærra gullinnihald þýðir jafnframt færri íblöndunarefni, sem gerir 18kt gull að góðu vali fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir ofnæmi. Helstu lúxusframleiðendur, á borð við Gucci, nota eingöngu 18kt gull fyrir gæði, lit og áferð.
14kt gull
14 karata gull er vinsælasta gullblandan í skarti hér á landi, þar sem hún sameinar fallegan lit og mjög góða endingu. Með 58,5% hreinu gulli og sterkum málmblöndum er 14kt gull harðara og slitsterkara en 18kt, sem hentar sérstaklega vel í skart sem er notað daglega. Þetta jafnvægi milli gæðis og styrks gerir 14kt gull að áreiðanlegu og fjölnota vali fyrir flesta skartgripi.
Skart með steinum
Skart með steinum þarf að yfirfara reglulega með tilliti til klóa eða annarra festinga. Festingarnar slitna smám saman og þá er hætta á að steinar detti úr.
Skart með opal stein er gott að bleyta reglulega til að steinninn þorni ekki og byrji að springa.
Harka steina getur verið misjöfn og þeir því misviðkvæmir í notkun. Æskileg harka fyrir steina sem nota á dagsdaglega þarf að vera 7 á Mohs skalanum eða yfir.
Mohs skalinn
- 10 = Demantur
- 9 – 10 = Safírar, rúbínar
- 5 – 6 = Opal
- 4 – 5 = Perlur
Hreinsun á skarti
Silfur: Gott er að geyma silfur skart í loftþéttum umbúðum (svo sem zip lock pokum) til að draga úr líkum á að það falli á það þegar það er ekki í notkun . Ef fallið hefur á silfur þá er mælt með að nota silfur dipp hreinsivökva – með undantekningum þó – og skola vel með köldu vatni eftir á.
Perla: Skart með perlu skal varast að setja í hreinsilög – perlan getur tekið í sig lit frá vökvanum. Auk þess er ekki æskilegt að fara með perlu í klórvatn eða miklar hitabreytingar svo sem heitan pott.
Viðkvæmir gimsteinar: Ef viðkvæmir steinar eru í skartinu er mælt með að nota mjúkan tannbursta, dippa skartinu í vökvann og nudda skartið (ekki steininn) og skola vel með köldu vatni eftir á.
Æskilegt er að fara reglulega með skartgripi til fagmanna til hreinsunar og í almenna ástandsskoðun.
