Ævintýri hafa verið kjarninn hjá Suunto síðan 1936, þegar finnskur rathlaupari uppgötvaði nýja leið til að framleiða nákvæmari áttavita. Í dag er Suunto leiðandi í hönnun og nýsköpun á heilsuúrum, áttavitum, köfunartölvum og hjartsláttarmælum.
Suunto býður upp á vönduð úr sem þola mikið en státa af fallegri, norrænni hönnun svo þau geta verið borin á úlnliðnum alla daga. Höfuðstöðvar Suunto eru í Finnlandi.
Samanburður á Suunto úrum
Það getur verið erfitt að sjá muninn á heilsuúrum og hvað hentar hverjum. Hér að neðan er tafla sem sýnir helsta muninn milli módela en við reynum að útskýra muninn hér líka. Öll úrin eru jafn vönduð og góð, virknin er í grunninn nánast sú sama milli allra úra, en mismunandi eiginleikar geta hentað mismunandi aðilum. Hér má sjá algjöran samanburð á heimasíðu Suunto.
Suunto Race / Race S:
Þetta er úr sem við teljum henta flestum, bæði þeim sem eru að leita að æfingaúri en líka snjallúri almennt – sérstaklega þar sem það kemur í tveimur stærðum. Gullfallegur og bjartur AMOLED skjár og góð rafhlöðuending. Race / Race S henta sérstaklega vel þeim sem eru virk í skokki, styttri og lengri hlaupum, hjólreiðum og allri hreyfingu sem tekur mið af hraða og vegalengd. Suunto Race / Race S geta mælt mjólkursýruþröskuldinn, sem Vertical getur ekki. Race S er 50m vatnsvarið, svo það má synda með það og stunda léttari vatnasport. Race er 100m vatnsþétt, svo það þolir sund, yfirborðsköfun (snorkl) og brimbrettabrun.
Vertical:
Vertical / Vertical Solar eru með ruglaða rafhlöðuendingu – og Vertical Solar raunar bestu rafhlöðuendingu nokkurs úr. Á móti er skjárinn ekki jafn bjartur og skarpur, þar sem hann notar MIP tækni. Í útivist, og sérstaklega beinu sólarljósi, nýtur skjárinn sín mjög vel, þar sem AMOLED er ekki jafn sterkur. Vertical hentar sérstaklega vel þeim sem eru í utanvegahlaupi, margra daga löngum hlaupum og göngum og í raun öllu sem á sér stað í náttúrunni og þeim sem vilja einstaklega góða rafhlöðuendingu.
Race S | Race | Vertical | |
Stærð | 45 x 45 x 11.4 mm | 49 x 49 x 13.3 mm | 49 x 49 x 13.6 mm |
Þyngd | 60 g | 69 g (títaníum) 83 g (stál) | 74 g (títaníum) 86 g (stál) |
Skjár: Gler | Gorilla Glass | Rispufrír safír | Rispufrír safír |
Skjár: Stærð & upplausn | 1,32″ / 466 x 466 | 1,43″ / 466 x 466 | 1,40″ / 280 x 280 |
Skjár: Gerð | AMOLED | AMOLED | MIP |
Vatnsvörn | 50m | 100m | 100m |
Rafhlöðuending (allt að): Þjálfun | 30 klst (All-Systems GNSS mode + Multi-Band) 40 klst (All-Systems GNSS mode + Single-Band) 120 klst (Power saving GNSS modes) | 50 klst (All-Systems GNSS mode + Multi-Band) 65 klst (All-Systems GNSS mode + Single-Band) 200 klst (Power saving GNSS modes) | 65 klst (All-Systems GNSS mode + Multi-Band) 90 klst (All-Systems GNSS mode + Single-Band) 500 klst (Power saving GNSS modes) Solar: 90 klst (All-Systems GNSS mode + Multi-Band) 140 klst (All-Systems GNSS mode + Single-Band) 500 klst (Power saving GNSS modes) |
Rafhlöðuending (allt að): Hversdagsleg notkun | 9 dagar (Smartwatch mode) 13 dagar (Standby time mode only) | 16 dagar (Smartwatch mode) 26 dagar (Standby time mode only) | 30 dagar (Smartwatch mode) 60 dagar (Standby time mode only) Solar: 60 dagar (Smartwatch mode) 1 ár (Standby time mode only) |
Kort án nettengingar | Já | Já | Já |
Hæðarmælir – loftvog – áttaviti (ABC) | Já | Já | Já |