Eins og flestir vita, þá stóð handknattsleiklið Fram uppi sem tvöfaldur meistari eftir nýliðið tímabil en karlalið Fram varð bæði Íslands- og bikarmeistari á sannfærandi hátt. Kvennaliðið komst í bikarúrslit og í úrslitakeppnina en laut í lægra haldi á báðum vígstöðvum. Svo sannarlega glæsilegur árangur beggja liða og vonum framar og Michelsen 1909 eru afar stoltir styrktaraðilar og stuðningsmenn félagsins. Róbert F. Michelsen mætti á lokahóf handknattsleiksdeildar Fram á dögunum og afhenti ávísun uppá 1.000.000,- krónur til formanns Handknattsleiksdeildarinnar fyrir glæsilegan árangur nýliðins tímabil.
Hér má lesa nánar um lokahóf handknattleiksdeildar Fram og verðlaunahafa vetrarins.