Ókeypis heimsending.

Stundaglasið, bréf 14

Velkomin í Stundaglasið, vikulega uppfærslu frá okkur í Michelsen 1909 um allt það helsta frá síðastliðinni viku í úrabransanum.

Í síðasta bréfi horfðum við mikið á merki sem eru okkur nær og kær, sem við vinnum með daglega. Það er ekki svo gott að sinni, þar sem NOMOS er eina merkið okkar sem gaf nýtt frá sér í vikunni. Að sinni munum við þá horfa mikið til merkja sem ekki finnast hérlendis,en sumarið er lent hjá úramerkjum og berjast allir um að vera með úr sumarsins. Við kíkjum á elsta úra merki heims, Blancpain, þar sem þeir hafa loksins minnkað Fifty Fathoms-línu sína, H. Moser & Cie hefur hugsanlega gripið kórónuna hvað varðar úr sumarsins, og margt fleira.

Viðskiptafréttir

Ég er maður sem vill helst engar vondar fréttir, en ef þær koma þá vil ég heyra þær á undan þeim góðu. Þess vegna byrjum við á þeim hér. Útflutnings tölur svissneskra úra fyrir maímánuð voru að líta dagsins ljós og útlitið er í verri kantinum. Í heildina var 9,5% lækkun á útflutning miðað við sama mánuð árið 2024 og helstu drifkraftar þessarar lækkunar eru Bandaríkin og Kína.

Í apríl var nær 150% hækkun milli ára til Bandaríkjanna, sem voru viðbrögð við áformuðum tollum Bandaríkjanna sem við fórum yfir í bréfi 4 af Stundaglasinu sem og í bréfi 7. Í maí nam lækkunin 25% til Bandaríkjanna. Mesta áhyggjuefnið liggur þó ekki í Bandaríkjunum, því aðrir markaðir á borð við Kína, sem er meðal annars næststærsta innflutningsland svissneskra úra, hafa lækkað gífurlega. Erfið staða á fasteignamarkaði í Kína, sem stefnir hreinlega í krísu, hefur valdið því að útflutningur hefur lækkað um yfir 17%.

Þrátt fyrir allt þetta þá er heildar aukningin um 1,1% frá upphafi árs, þó þær tölur séu villandi vegna skekkjunnar í apríl, þegar útflutningur jókst um 150% til Bandaríkjanna. FHS, eða Federation of the Swiss watch Industry, sem sér um söfnun og úrvinnslu þessara gagna segir í greininni sem fylgir gögnunum að þó þessi 1,1% aukning líti vel út á blaði, þá segi hún bara hálfa söguna því sala úranna, eftir að þau lenda í verslunum, sé önnur og fari hnignandi . Þessi tilkynning er óvenjuleg og áhyggjuefni, þar sem hún gefur grimma sýn á nánustu framtíð bransans.

NOMOS

Yfir í jákvæðaro fréttir. NOMOS hefur gefið út nýtt úr í Ahoi-línu sinni og þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem við fórum yfir NOMOS, en fyrr í vikunni fór ég yfir mín 5 uppáhalds NOMOS úr. Ahoi-línan er kafaralína þeirra, úrin eru samt eiginlega ekki kafaraúr heldur frekar sterkari sportúr þar sem þau eru 200 metra vatnsþétt og með skrúfaðri krónu. Talandi um krónuna, þá er dagsetningaskipting úrsins minn uppáhalds eiginleiki við það, þar sem hægt er að skipta dagsetningunni fram og aftur (vanalega er einungis hægt að færa dagsetningu áfram). Ahoi-línan er lína sem ég hef ekki mikla reynslu af, en er mjög spenntur að sjá hvernig þessi útfærsla kemur út.

Blancpain

Líkt og ég nefndi í inngangi greinarinnar þá hafa Blancpain loksins minnkað Fifty Fathoms-línuna. Síðustu ár hafa Fifty Fathoms aðeins verið fáanleg í annað hvort 42mm eða 45mm. Nú hefur sólin skinið á fólk sem vill úrin í smærri kantinum þar sem það var gefið út í 38mm.

Omega

Talandi um lítil úr, þá hefur Omega stækkað Aqua Terra-línu sína með 12 nýjum úrum í 30mm, mest spennandi við þessi nýju úr er að Omega hefur látið splunkunýtt gangverk í þau. Gangverkið er vottað af METAS sem Master Chronometer.

H. Moser & Cie

Eins og ég sagði í innganginum, þá tel ég hugsanlegt að H. Moser & Cie hafi hreppt titilinn fyrir bestu úr sumarsins. Þessi nýju úr frá þeim halda einstakri skífuhönnunar þeirra en koma í nýjum litasamsetningum. Af þessum þremur nýju úrum finnst mér bláa útgáfan flottust og er það úr sumarsins hingað til.

Ressence

Ressence hefur farið vaxandi í vinsældum á síðustu árum og er það að stórum hluta að þakka Type 9 úra þeirra. Fyrr í vikunni kynntu þeir nýja skífu á krúnudjásnið sitt, en úrið er gert í samstarfi við Ahmed Seddiqi, stórveldu í úrum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hvernig kemur maður eyðimerkurlandslagi á skífu? Nú, að sjálfsögðu með að taka sand úr furstadæmunum sjö og nota hann sem skífu.

Jaeger-LeCoultre

Jaeger-LeCoultre, eða JLC, hefur stækkað við sig í Polaris-kafaralínu sinni. Úrið er reyndar skeiðklukka þannig virkar ekki frábærlega sem kafaraúr, en hvað getur maður gert? Skífan er reyndar gullfalleg og eru JLC með mínum uppáhalds þannig ég styð skeiðklukku í kafaralínu þeirra.

Hér með líkur fjórtánda bréfi Stundaglassins. Við fórum yfir góðar og slæmar fréttir en ég kýs að líta á björtu hliðarnar. Frá litríku H. Moser & Cie sem gerir tilkall til úr sumarsins yfir í glænýtt NOMOS úr sem ég bíð spenntur eftir að bera augum, þá var nóg jákvætt þessa vikuna. Ég vil enn og aftur minna á grein vikunnar þar sem að sinni fór ég yfir mín 5 uppáhalds NOMOS úr. Ef þið viljið ræða við mig um greinina eða hafið einhverjar spurningar þá hvet ég ykkur til að senda mér tölvupóst á [email protected].

Takk kærlega fyrir lesturinn og ég hlakka til að kynna fyrir ykkur bréf fimmtán af stundaglasinu næsta föstudag.