Hér kemur greininn sem ég hef beðið spenntur eftir að skrifa: mín topp 5 NOMOS. Eftir að hafa farið í gegnum topplista fyrir merki, Longines, Tudor og Breitling þá var tímaspursmál þar til ég kæmi að NOMOS. Ég hef oft ritað um ást mína á þessu litla, þýska merki og mun sá lofsöngur ekki enda hér. Í hvert skipti sem ég skrifa nýja grein þá reyni ég að koma NOMOS fyrir hvar sem ég get. Þessi grein verður í þriðja skipti sem ég skrifa grein einungis um NOMOS. Áður hef ég skrifað um sögu NOMOS Glashütte og einnig um nýjunga þeirra á Watches and Wonders hátíðinni frá því fyrr á árinu og mæli ég eindregið með að kíkja á báðar þessar greinar – og þá sérstaklega sögugreinina sem formála fyrir þessa grein.
Í minni persónulegu eigu eru tvö úr frá NOMOS sem ég nota oftar en flest annað í mínu safni. Oft þegar ég skrifa þessa topplista og ég á úr sem passar inn í ákveðin flokk þá endar það úr vanalega mjög hátt á þessum listum. Það kemur því á óvart að hvorugt af þeim úrum sem ég á nældu sér í sæti á þessum lista. Þrátt fyrir að komast ekki á lista þá vil ég samt gefa þeim smá athygli, þannig fyrir áhugasama þá læt ég mynd af úrunum tveimur fylgja hér að neðan.
NOMOS Tangente
Þegar fólk hugsar um NOMOS og um línurnar þeirra, þá er oft aðeins ein sem kemur fyrst upp í hugann. Tangente er langþekktasta lína þeirra og er hún margverðlaunuð. Þetta er stærsta úrið á þessum lista þar sem það mælist 39mm. Á skífunni má sjá neomatic-textann sem merkir nýju kynslóð sjálftrekktu gangverka þeirra sem er bæði nákvæmari og þynnri en þau sem áður komu. Tangente er einnig fullkomin sýn á hver andi NOMOS er: þýsk Bauhaushönnun í samblandi við einstaka þýska verkfræði.
NOMOS Club
Club-lína NOMOS er síðan á hinum endanum hjá NOMOS þegar litið er yfir merkið. Ef Tangente er stóri bróðirinn sem er kominn með fína og stöðuga vinnu sem endurskoðandi og tekur frí til Tenerife í tvær vikur á hverju sumri, þá er Club yngri bróðirinn sem vill eyða öllum sumarnóttum úti á skólalóð með vinum sínum í fótbolta eða liggja í grasinu í sveitinni að telja stjörnurnar. Club-línan er sú sem NOMOS leikur sér hvað mest með þegar kemur að litum líkt og sést á úrunum tveimur sem ég á og setti efst í þessa grein.
Club-úrin nota Alpha gangverk NOMOS sem er örþunnt – aðeins 2,6 mm á þykkt. Til að setja þessa fáránlegu tölu í samhengi þá er gangverkið þynnra en þrjú kreditkort. Gangverkið er hins vegar ekki bara þunnt heldur er það verklega ómótstæðilegt, skekkjan er innan við 10 sekúndur á dag, sem merkir að í versta falli er dagleg skekkja í 0,011%. Úrið hefur einnig 43 tíma hleðsluforða og er þetta handtrekkta gangverk gullfallegt í þokkabót.
NOMOS Ludwig
Hér förum við í fágaðasta úrið á þessum lista og fórum við meðal annars yfir það í lista okkar yfir formleg úr, ef að eitthvað úr er tímalaust þá er það þetta, sama hvaða áratug þetta hefði komið út þá hefði þetta verið eitt fallegasta úr síns tíma og mun það halda áfram að vera eitt fallegasta úr á markaðinum næstu áratugi. Úrið, líkt og Campus-línan, inniheldur Alpha-gangverkið og er það því fullkomið við jakkafötin þar sem það fellur vel undir skyrtulíningarnar.
NOMOS Orion
Ég tel Orion-línuna einstaklega vanmetna innan NOMOS. Úrin eru fáguð og er þessi „new black“ útgáfa gullfalleg og ég meina það bókstaflega, þar sem gulltónarnir sem sjá má í klukkustundamerkjum úrsins, í samblandi við stál úrkassann og djúpsvörtu skífuna gera blöndu sem erfitt er að toppa. Gangverk úrsins, DUW 3001, er partur af neomatik-fjölskyldunni. Gæðalega er gangverkið, eins og við er að búast, frábært með með 43 klukkustunda hleðsluforða og þó að það sé ekki COSC-vottað sem chronometer, þá segja NOMOS að það uppfylli allar kröfur til þess. Það merkir að skekkjumörk úrsins séu -4 til +6 sekúndur á dag.
NOMOS Metro
Úr sem ég verð meira og meira ástfangin af með hverjum deginum sem líður. Ég hef rætt um það áður í lista mínum yfir mín uppáhalds dömu úr en þegar ég hugsa um það, þá veit ég ekki hvort ég sé endilega sammála því að þetta sé dömu úr. Því meira sem ég lít yfir NOMOS úrin því meira finnst mér ekkert af þeim vera endilega dömuúr.
Það á einnig við um herraúrin, jú sum úrin eru stór og önnur lítil en NOMOS markaðssetur ekkert af úrum sínu einungis til kvenna eða einungis til herra. Þetta Metro-úr er svo öðruvísi en allt annað sem ég hef séð þegar það kemur að hönnun og er það því ofarlega mínum óskalista. Ef þið viljið lesa ítarlegri útskýringu á úrinu, þá mæli ég með því að kíkja á mín uppáhalds dömu úr.
Þá er þessum kafla NOMOS-sögunnar hjá tímariti Michelsen 1909 að ljúka. Við höfum loksins gert topplista um NOMOS en þau úr sem við nefndum takmörkuðust við þau sem við eigum til í verslun okkar á Hafnartorgi. NOMOS er hins vegar miklu meira en bara það sem er til hjá okkur, eins og sjá má með mínum persónulegu úrum sem þið sáuð í greininni. Í verslun okkar vantar úr líkt og nýja Worldtimerinn, Ahoi-línuna og Tetra ásamt fleirum. NOMOS er eitt skemmtilegasta merki sem fyrir finnst og hvet ég alla sem eiga ekki NOMOS að skoða vefsíðu okkar og vefsíðu þeirra til að sjá hvort NOMOS eigi ekki heima í safninu.
NOMOS er þekkt fyrir gæði og frábær verð, þ.e. að virðið sé frábært, en NOMOS er algjörlega sjálfstæður framleiðandi sem framleiðir allt sitt sjálfur. Normið í iðnaðinum, sérstaklega hjá smærri merkjum, er að þau kaupi úrverk frá sérhæfðum verkframleiðanda, en hjá NOMOS er allt gert innanhúss – sem er G A L I Ð, sérstaklega þegar við horfum á verðin.
Ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi greinina eða um NOMOS þá megið þið senda á mig á [email protected]. Ég vil minna á þrettánda bréf Stundaglassins þar sem við fórum meðal annars yfir ný Breitling úr. Einnig mun fjórtánda bréf Stundaglassins líta dagsins ljós næsta föstudag þar sem verður meðal annars farið yfir nýjungar frá Blancpain.