Ókeypis heimsending.

Tækni gegn hefð

Við lifum á afskaplega einkennilegum tímum þegar það kemur að úrum og tímamælingum. Það eru liðin yfir 50 ár frá upphafi quartzkrísunnar, sem hefði átt að gera mekanísk úr úrelt, og meira en 10 ár frá því að mest selda úr allra tíma kom á markað. Sú staðhæfing fer reyndar eftir því hvort þú teljir Apple Watch vera úr eða tölvu, en Apple Watch hefði átt að gera quartz úr úrelt og mekanísk úr að steingervingum.

Þrátt fyrir allt, þá standa mekanísk úr enn fyrir sínu og við sjáum einhverskonar heilbrigðan þríleik á milli þessara þriggja heima. Með komu snjallúra hefur hinn hefðbundni úra markaður styrkst gífurlega. Fólk sem áður hafði aldrei notað úr var allt í einu farið að stóla á að úrið og upplýsingarnar sem það gaf því; hvort sem það var ný Facebook-færsla, upplýsingar um svefninn eða að segja þér að drulla þér á fætur svo þú náir skrefamarkmiði dagsins.

Á endanum varð fólk þreytt á stöðuga áreitinu sem fylgir snjallúrum. Það varð þreytt á að heyra í fjórða skipti í vikunni að það hafi ekki sofið nógu vel. Ég hef einnig heyrt sögur og lesið greinar um að þetta áreiti  hafi haft skaðleg áhrif á andlega líðan fólks og að þegar læknar spyrji fólk um svefn og heilsu, lesi það upp upplýsingar frá úrinu frekar en að segja frá eigin líðan. Margt fólk hætti því að nota snjallúr til daglegrar notkunar og notuðu þau frekar til að styðja við líkamsrækt. Vandamálið var þá að fylla skarðið sem snjallúrið skyldi eftir á úlnliðnum.

Inn stigu hin hefðbundnu úr. Þetta leiddi til mjög áhugaverðs tíma í útflutningi úra frá Sviss. Árið 2015, sama ár og Apple Watch kom út, féll útflutningur á svissneskum úrum niður um 3.3% frá fyrra ári, í fyrsta sinn frá 2009, og var 21,5 milljarðar CHF. Í Covid féll þessi tala gífurlega, þar sem útflutningur var nær 17 milljarðar en aðeins tveimur árum seinna sáum við uppsveifly markaðarins, og útflutningur ársins 2022 nam 24,8 milljörðum CHF, eða upp um 11.4% frá fyrra ári og tæplega 31% hækkun frá 2020.

Stærstu áhrifavaldar þessarar þróunar eru m.a. koma snjallúra og að endursölumarkaður úra stækkaði gríðarlega og varð stærri en nokkru sinni fyrr. Minni framleiðsla og aukin eftirspurn vegna Covid varð til þess að fólk seldi úrin sín dýrari en það keypti það. Þetta var fljótt að breiðast út og enn fleira fólk fór að sjá vönduð úr sem fjárfestingu og verðmætustu merkin á endursölumarkaði stækkuðu gífurlega hratt.

Eftirspurning eftir ROLEX sérstaklega jókst gríðarlega og velta félagsins fór úr 5,2 milljörðum CHF árið 2019 í 10,1 milljarð árið 2024 og veltan yfir 30% af öllum svissneska úraiðnaðinum.

Tækni gegn hefð. Ef við tækjum þetta frá hagfræðilegu sjónarmiði, þá ættu mekanísk og quartz úr ekki að vera í neinni notkun í dag, þar sem tæknin hefur skilað meiri nothæfni og auknum afköstum. Tæknin fleytir okkur áfram og við lifum á tímum þar sem við þjótum inn í framtíðina á hraðar með hverjum deginum sem líður. Upplýsingar flæða hraðar en nokkru sinni fyrr, gervigreindin hefur einfaldað vinnu margra á mismunandi sviðum. Þrátt fyrir alla þessa þróun og allan þennan hraða kjósa margir að hægja á, kjósa nostalgíu og að lifa einfaldara lífi í flóknum nútímanum, og fram yfir allt, þá kjósum við hefð.

Líkt og alltaf þá þakka ég kærlega fyrir lesturinn og bendi ykkur á bréf 21 af Stundaglasinu. Í næstu viku kemur síðan nýtt Stundaglas, þar sem við förum yfir allt það helsta í úrabransanum.